Núna er svo komið að umræðuflokkurinn "Baggalútía" er þriðji vinsælasti þráðurinn á eftir Almennu spjalli og Leikjum. Auðvitað er hægt að segja að þá sé Baggalútía annar vinsælasti flokkurinn vegna þess að ekki er hægt að taka mark á innleggjafjölda í leikjunum.
Í tilefni af þessu verður haldin veisla á kostnað ríkisins í höll Keisarans!
Með von um góða skemmtun,
Ekkert smá spenntur
Kostnaðurinn verður ekkert mál. Hver verður veislustjóri kvöldsins annars?
Við erum með skemmtanastjóra sem vinnur fyrir ríkið.
Ég bara vona að Goggskrattinn verði búinn að skila áfenginu.
ýtir á takka sem tengur er við hjálm Goggsins og gefur honum rafstuð, hvar sem hann er
Sem þegn Baggalútíu fagna ég...en hvet alla til að fjölga heimsóknum á Efst á baugi..skál
Ég bara vona að Goggskrattinn verði búinn að skila áfenginu.
ýtir á takka sem tengur er við hjálm Goggsins og gefur honum rafstuð, hvar sem hann er
ÁÁÁ! Hættu þessu! Þó að ég sé með hjálm hef ég líka tilfinningar! Já, ég er búinn að skila áfenginu.