Hver getur blótað skrautlegast og litríkast?
Hvað í aflituðum FM-Hnakkanum?
Hvað í hertri epplakinninni?
Því í sólbrenndu vöðvabúntinu?
Því í útvötnuðu grjúpáninu?
Þér eigið leik!
Fjandi og fár stendur alltaf fyrir sínu.
Djöfull, dauði og óendanlegar þjáningar.
Skaðbrennd skonsa!
Fari það í andskotans heitasta helvíti þótti mér alltaf flott þegar ég var barn.
Öll blótsyrði Hergé-persónunnar Kolbeins kafteins eru fullkomnun
"Er/Sie/Es sind fullkommen!"
Djöfull, dauði og óendanlegar þjáningar.
Vertu bara velkominn Hákon minn.
Einn mann kannast ég við sem blótaði all herfilega. Honum var ráðlagt, eftir að hann varð afi, að segja frekar bílanöfn heldur en blótsyrði svo ungviðið hefði þetta ekki eftir honum. Heyrist nú því oft frá honum:
Toyota!
Skollans skolli
Hvers vegna í djúpsteiktum dádýratörfum getur nær enginn hér hunskast til að nota hér sígild, íslensk blótsyrði ? Hefur óljóst á tilfinningunni að eitthvað sé mótsagnakennt við undanfarandi nöldur
Hvaða helvítis, djöfulsins, andskotans, helvítis, helvíti.
Bévítans.
Árans ári.
Fari það í skögultennt óbermið!