Kæru félagsmenn og yfirdrottnarar
Eins og sést er mitt rétta andlit komið í ljós. Hér með mun Seðlabankastjóri gegna skyldum sínum eins og til var ætlað.
Með von um áframhaldandi traust og gott samstarf,
Brenjar
Ja hérna! Komdu sæll. Þetta er mikið mun miklu meiri ásjóna seðlabankastjóra heldur en gerpið hann Rambúbú.
Þakka þér Vamban,
Ávallt hef ég nú verið ánægður með þína ásjónu. Hún er traust.
Rosalega eru þetta flott gleraugu!
Já, þau eru svipuð gleraugum Larrýs í Laugarásvídeói. Trúverðugra verður það ekki.
Þetta er mikil framför.
Larrý hlýtur að vera mesta smekkmenni. Þetta eru samskonar gleraugu og ég átti áður en sólgleraugun komu til sögunnar. Það kæmi mér ekki á óvart ef þetta væru hin sömu.
Tja, já, þau eru svona um það bil 14 kg. En það er þess virði að fá ofboðslegt sár ofan á nefið.
já, enda verður maður að vera með sterkbyggt nef fyrir svona grip. Við búum báðir sjáanlega yfir kraftanefi.
Er ekki kominn nein dagskrá á kvöldið, háttvirtu félagar?
ekk önnur en að dreypa á smá cognac.
Ég er kominn á fimmta bjór! Skál!
Mér líður alveg hræðilega í maganum, ég held að mér hafi verið byrlaður Tópas en eins og allir vita þá hef ég hræðilegt ofnæmi fyrir Tópasi.