Ég vil stofna Fullbráðramannfélag Bagglútíu þar sem herskáir (og oftar en ekki ölvaðir), bráðir og hvatvísir ráðherrar fái útrás. Félagsstörf tengjast m.a. bráðum þörfum fyrir banatilræði, glórulausum hryðjuverkum, meiðyrðum og almennum dónaskap en gæti þó endað með eins og einni heimstyrjöld eða svo.
Er einhver með?
Nei, það er það ekki. En hvatvísi er skilyrði.
Ég veit ekki hvort að ég hef við öllum þessum félagsgjöldum.
Við getum rænt spilavítið í Monte Carlo og borgað þannig.
Það yrði örugglega fín skemmtireisa.
Þú segir nokkuð. Við gætum kannski kíkt til Andorra eða Mónakó þá í leiðinni?
Auðvitað. Við getum snúið þessu upp í allsherjar ránsskemmtireisu.
Monte Carlo er reyndar í Monaco þannig að ekki er langt að fara á þeim bænum.
tekur saman ránsferðabúninginn sinn, klifurdótið, c4 sprengjurnar, nightvisiongleraugun og annað smálegt
Ekki gleyma smókíngnum. Við verðum nú að gambla eitthvað í leiðinni. Skiptir engu hve miklu við töpum þar sem því verður rænt til baka síðar.
Ég slæ til! Tekur stokk af ásum, lóðaða teninga, kindabyssu og nokkrar kindur í hana
Getum við ekki myrt einhvern og hryðjuverkað aðeins í leiðinni? Gerir sig klárann
Ég held ég skelli mér bara með, ef ykkur er sama. Alltaf gaman að koma til Mónakó. Kannski maður reyni að komast í sirkusinn hjá Stefaníu prinsessu og hennar spúsa. Starir þegjandi út í loftið
Væri ykkur ekki nær að gera eigin þjóð greiða og ræna einhvern íslenskan sægreifa?
Væri ykkur ekki nær að gera eigin þjóð greiða og ræna einhvern íslenskan sægreifa?
Eða kannski fjölmiðlakónga, sparisjóði og banka?
En... má ég þá skrá þá sem hér hafa sig tjáð í félagið? Það eru ókeypis veitingar í boði Landbúnaðarráðuneytisins.
Munu félagsgjöldin koma til baka í formi þessara "ókeypis" veitinga?