Fallegt sönglag:
Að komið sé fram við mig sem ræfil er fáheyrt,
gættu að málfari þínu, og göngulagi þínu
eða um þig og þína félaga verður dregin lína með krít.
Mér er illa við að ferðast, en ég verð.
Er þeir falla sé ég sjálfan mig í byssureyk, fífl!
Ég er þannig G sem litlir kallar vilja líkjast,
á hnjánum að nóttu til,
fer með bænir í götuljósinu.
Og gettu nú.
Þetta mundi vera paradís Gangsteranna og gott ef það var ekki kalliJó (Coolio)
Ég myndi öskra eins og gamla flugan
sem er í glugganum og bíður
bíður eftir fingri sem kreistir
eða hikar?
Mér líður hálf kjánalega að vera að einokna svarréttinn, en þetta er ekkert annað en Murr Murr eftir son Muggs
Hér kemur eitt erfiðara, þó frægur sé höfundurinn:
Nú, það hefur alltaf tilheyrt minni náttúru að taka breytingum,
mín hægri hönd dregur sig í hlé meðan sú vinstri bætir sig,
hvar straumurinn er sterkur og apinn dansar
við lag harmonikkunar.
Þið eruð í vitlausum þræði vitleysingarnir ykkar! Hérna er textaþráður.
Neitar að giska í mótmælaskini
Ég myndi þá áætla að það sé fullkomlega löglegt að spyrja hver semji og flytji þetta textabrot ásamt öllum öðrum tónlistartengdum spurningum. Eða er ég eitthvað að missskilja þetta.
Það er svosum rétt hjá þér sphinxx. Hins vegar er best að hafa spurningar af þessu taki á textaleiknum fyrst hann er á sínum stað. Höldum engu að síður spurningu Húmbaba til streitu.
Er þetta eitthvað með Waits?
Húmbumbi reyndu að halda þessu gangandi, komdu með vísbendingu....
Jæja þá. Hann hefur komið til íslands og frægasta lagið hans kom upprunalega sem sándtrakk í ágætis vestra.
Dylan - Angelina
Harmonikudótið ruglaði mig aðeins, "concertina" heitir bara "konsertína" upp á ástkæra ylhýra.