Ekki Sabbath nei. En jú, hér er um að ræða mjög þungan málm.
Ekki var það járnfrúin. Ég er að tala um miklu þyngra stöff.
Kannski þessi sé of erfið hjá mér?
Nei, nei, nei og nei.
Um er að ræða Breska grúbbu.
Megadeath? - hef reyndar enga hugmynd hvaðan hún er enda er þetta skot alveg út í loftið.
Nær Cannibal Corpse en hitt. Þú ert heitur.
Opeth? Biomechanical? Komdu nú með vísbendingu, hvað hafa þeir gefið út margar plötur?
Nafn þeirra á nokkuð sameiginlegt með orðinu "roadkill".
Þeir vitna mikið í læknisfræðilega texta.
Þeir eru grænmetisætur þó þeir fjalli oft mikið um mannát t.d. í slagara eins og "Exhume to consume"
Carcass var það! Kongratúlering all ránd!
Plata hét "Symphonies of sickness" og hér gefur að líta lítið en subbulegt coverið: http://www.mds.mdh.se/~kem93mkn/bilder/ssicknes.jpg
Vilt þú koma með næstu eða á ég að halda áfram?
Mér dettur ekkert í hug, hver sem er má spyrja.
Ég held þá áfram. Spurt er:
Eftir hverja er lagið Island in the sun sem mjólkurbúið Dolly Parton og kúrekinn Kenny Rogers sungu svo fallega um árið?
Athugið að reglum hefur verið breytt: http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?p=62572#62572
Ég verð, af minni alkunnu háttvísi, að leiðrétta þig, því hér hefur orðið einhver samsláttur hjá þér.
Það var Harry Belafonte sem söng svo skemmtilega lagið "Island In The Sun" einhverntímann á sjötta áratugnum.
Síðan var það lagið [u]Islands In The Stream[u] sem sungið var af Rogers og Parton árið 1983 og var því reyndar nauðgað kyrfilega inn í hlustir íslendinga eftir að Rás 2 tók til starfa þetta sama ár.
Ég held að höfundur lagsins hafi aldrei verið gefin upp opinberlega, nema að mig minnir að eitthvað hafi kvisast út um það nýlega og ég man bara ekki hver á í hlut. Gæti hugsast að þetta væri "gibbi gibbi gaman" eða lag eftir Bee Gees bræðurna?
Jú og takk fyrir leiðréttinguna. Bölvar bjórnum Islands in the stream var það víst.
Bee Gees sömdu þetta.
En þá spyr ég hver samdi lagið Blinded by the light sem (að mig minnir) Mannfred Mann's Earth Band gerðu frægt?
Það var Bruce Springsteen, en finnst þér virkilega rétt að spurningar komi eingöngu úr einni átt? hmmm...ha? Má enginn annar spyrja?