Ég hef gefið skipun um að koma upp her kokkteilvillisvína, með það að markmiði að beita þeim gegn þessum óforskömmuðu Strumpum.
Svínin verða búin svokölluðum „cyborg“ búnaði og kóbaltskögultönnum og verða sérþjállfuð til átaka við Strumpa.
Loksins, loksins! Loksins aðgerðir ekki bara tal.
Hjartanlega sammála!! Það er löngu kominn tími til að kenna þessum strumpum sína lexíu. Hvenær verður áætluninni svo hrint í framkvæmd?
Hvað um laugardaginn? Ágætis dagur fyrir svona lautarferðir.
Við skulum ekki ana að neinu. Þeir eru útsmognir þessir Strumpar. Ég er að hugleiða að fá Kjartan Galdrakarl sem „ráðgjafa“. Það er réttast að gera alls ekki það sama og hann.
Hann mun bara vera með útúrsnúningar, vill sjálfur eiga heiðurinn.
Rétt er það, en ég er viss um að Blástakkur getur aðstoðað við að ná einhverju gagnlegu upp úr honum. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Kjartan er í samvinnu við undirmenn mína að safna saman öllum upplýsingum sem við höfum við strumpana. Út frá því sem ég hef heyrt er líklega best að safna þeim einum og einum og aðlaga þá samkvæmt stýrifræðilegum aðferðum svo hægt verði að snúa þeim gegn eigin þjóð.
Nauðsynlegt er að ná fyrst tökum á svokölluðum "æðstastrumpi" sem er víst eini strumpurinn með langtíma skipulagshæfileika innan hópsins.
Hvað um laugardaginn? Ágætis dagur fyrir svona lautarferðir.
Síðastliðinn laugardag eða næsta laugardag ?
Skiptir ekki máli, bara þegar veðrið er gott.
Þá verður að finna næga Kjartana, ekki satt?
Ef að Gísli verður á svæðinu má svo sem taka hann höndum Hlær og brestur síðan í grát
Þessi þráður er ekki við hafi Bjarna!
hann Gísli hefur nú þurft að ganga í gegn um margt í gegnum árin.
já, kanski ekki viturlegt að láta vesalings manninn þjást... sleppum bara öllum gíslatökum. sturmpum skal gjöreytt!!! [hlær tryllingslega]
Eftir að hafa eitt 6 vikum vinnandi sem undercover gáfnastrumpur meðan hinn rétti var stýrifræðilegum "sumarbúðum" komst ég að því að réttast væri að senda íbúa nokkurn er nefnist Strympa í kóbaltbætta stýrifræðilega endurskipulagningu því hún mun vera sú sen á auðveldast með að hræra upp í öllum hinum og snúa þeim gegn hver öðrum hellir ákavít í glas og gefur frá sér vellíðunarstunu