Þessi stofnun mun stunda rannsóknir á sviði stýrifræði og, humm, tilraunir munu gerðar á, ehh, einstaklingum sem hafa það hlutskipti í lífinu að missa kost á sjálfstæðri ákvarðanatöku fyrir mitt tilstilli.
Þessi stofnun verður vitanlega undir fólskumálaráðuneytinu og því munu venjuleg lög um mannúð og slíkt ekki gilda.
Fólk má bjóða sig fram sem fórn.. tilraunad.. ohh þið vitið. Einnig vantar mig sæmilega brjálaðan aðstoðarmann en ég mun sjálfur gegna stöðu yfirskurðlæknis.
Einnig mun mig vanta mikið af kóbalti Vladimir.
Ég skal verða skurðlæknirinn.
Ég er nú sá brjálaðasti hérna.
ég skal vera sjúklingur, hef góð meðmæli frá Dr. Zoidberg. og svo hef ég gaman af því að vinna í návist frelsishetjunar
ég skal vera sjúklingur, hef góð meðmæli frá Dr. Zoidberg. og svo hef ég gaman af því að vinna í návist frelsishetjunar
Af útlitinu að dæma værir þú tilvalinn í starf endaþarmskanna...
Já, allt í lagi með það. En svo þið vitið hvað við erum að fara að gera hér þá eru það stýrifræðilegar tilraunir á mannsheilanum. Ég hef mikla löngun til þess að vita hvort hægt sé að koma fyrir í hægra heilahveli mannsins stýrifræðilegum einingum sem koma í veg fyrir sjálfstæða ákvarðanatöku mannsheilans og gera það kleift að utanaðkomandi aðili eða vitund geti stýrt athöfnum og vilja viðkomandi aðila.
ég skal vera sjúklingur, hef góð meðmæli frá Dr. Zoidberg. og svo hef ég gaman af því að vinna í návist frelsishetjunar
Af útlitinu að dæma værir þú tilvalinn í starf endaþarmskanna...
Farð þú nu bara og leiktu þér við eðallambið (kjötperrinn þinn)
Ég þakka.
Þetta útlit kom bara af sjálfu sér þegar ég fjarlægði hjálminn.
Hárið virðist hafa dottið af og ég er eitthvað fölur yfirlitum en annars er ég í fína lagi.
Vér höfum látið auka kóbaltframleiðslu í landinu um 50% og í Skaftafellsþjóðgarði eru tvær nýjar verksmiðjur um það bil að bætast við.
Vér væntum þess að útkoman úr þessu verði fyrsti "cyborg" í heimi.
ég skal vera sjúklingur, hef góð meðmæli frá Dr. Zoidberg. og svo hef ég gaman af því að vinna í návist frelsishetjunar
Af útlitinu að dæma værir þú tilvalinn í starf endaþarmskanna...
Farð þú nu bara og leiktu þér við eðallambið (kjötperrinn þinn)
Svona svona, ekki sár...
Mér finnst að þetta ætti að vera samstarfsverkefni Fólskumálaráðuneytis og Vísindaráðuneytis.
Já, en hvurnig er það, er Blástakkur ekki n.k. cyborg?
Samstarfsverkefni... jú það má alveg koma því þannig fyrir.
Og auðvitað má Sverfill vera með enda þarf að koma í veg fyrir mótspyrnu almennings gegn framtíðarskipulagi heimsins... eh eða eitthvað svoleiðis.
Varðandi hvort ég sé "cyborg" þá vil ég nú minnst segja um það en ég hef lengi verið að betrumbæta mig samkvæmt stýrifræðilegum aðferðum.
Heyr heyr...
Velur fólk af handahófi úr skemmtigarðinum í Frísey.... "Mikið rétt, þið hafið unnið fría lýtaaðgerð í boði Stýrifræðistofnunar..."
Er ekki tilvalið að nota sveitaballapoppara í þessar tilraunir? Ef þær heppnast vel og þeir eru annars óskaddaðir eftir þetta, gætu þeir gagnast vel til að stjórna lægsta lýðnum.
Svo eiga þeir þetta bara skilið líka.
Ég sé að Sverfill er ekki lengi að skilja aðferðafræðina á bakvið stofnun sem þessa. Sjáðu bara til þess að nóg af fólki sé sent til Glyðrugranda 5 þar sem ég er með fyrrverandi geymsluhúsnæði tilbúið með öllum tólum. Þar munu undirmenn mínir, en þess má geta að þeir eru flestir stýrifræðilega aðlagaðir sjálfir, sjá um að taka á móti viðkomandi og undirbúa þá undir skurðaðgerð.
Sendir "skemmtiferðaskip" að Glyðrugrandanum...