Vér höfum breytt listanum í samræmi við þetta og er Hilmar harðjaxl nú lífvörður forsetaembættisins.
Síðan á eftir að koma endanlegt, formlegt svar við því hvort Mosa hafi áhuga á að verða forsetafrú.
Enn er óskipað í eftirfarandi:
Yfirmatreiðslumeistari
Forsetaritari
Siðameistari
Einkaþjónn
Yfireinkaflugstjóri (hér gæti oss reyndar dottið í hug að taka oss Hussein heitinn Jórdaníukonung til fyrirmyndar)
Að lokum vekjum vér athygli hæstvirts Hakuchis og hæstvirtrar Júlíu á því að e.t.v. eru heldur fá embætti við konungs- og drottningarhirðina.
Ég þakka þarfa ábendingu yðar. Fámennið við hirð okkar hefur vissulega valdið óþægindum og áhyggjum síðustu daga.
Síðan á eftir að koma endanlegt, formlegt svar við því hvort Mosa hafi áhuga á að verða forsetafrú.
Heill verðu nú heldr, sveinn,
ok tak við hrímkálki,
fullum forns miaðar!
Þó hafða ek þat ætlat,
at myndak aldregi
unna Vladimir vel.
sbr. För Skírnis 37
ætlar ekki að segja það sem hann heldur
Heldur kjafti með Hákoni
Heill verðu nú heldr, sveinn,
ok tak við hrímkálki,
fullum forns miaðar!
Þó hafða ek þat ætlat,
at myndak aldregi
unna Vladimir vel.
Oss sýnist hér vera á ferðinni samþykki með ásættanlegum fyrirvörum. vandræðalega Vér erum þó eigi alveg 100% vissir en finnst þó það að oss er boðinn mjöður í stað þess að honum sé skvett á oss benda til að ályktun vor sé rétt. Sýpur á
Skammar svo Hákon og Nykur fyrir neikvæð viðbrögð en ákveður svo í anda ríkisstjórnar að bjóða þeim frekar mútufé og dregur fram nokkur nýprentuð seðlabúnt - Skál !
Bravó, Bravó!
Hvar er bölvaður biskupinn, á ekki að blessa þennan ráðahag?
Bravó, Bravó!
Hvar er bölvaður biskupinn, á ekki að blessa þennan ráðahag?
Ekki hefur biskupinn enn blessað okkar samband, minn kæri. Var ekki búið að stinga uppá konunglegu brúðkaupi á Árshátíðinni? Það væri nú skemmtun í lagi!
En til hamingju, Mosa mín og Vladimir!
Heyrðu, það er rétt hjá þér.
Þessi biskup er ekki að standa sig í stykkinu.
Ég vitna nú bara í Isaac Hayes lag:
"If loving you is wrong, I don't want to be right"
En hvað með allsherjargoðið, ef byskupinn er upptekinn?
Ég geri orð Marvins Gayes að mínum: 'How sweet it is to be loved by you'.
Biskupsblessun gæti tæplega bætt okkar samband - það verður vart betra!
Við lifum í synd, kæri vinur.
Og nú verður haldin syndsamleg veisla af augljósu tilefni og kemur hér fyrsta syndin: Skál !
Skál fyrir okkur!
Skál! snýr sér að Hakuchi og horfir djúpt í augu hans...syndin hefur alltaf ómótstæðilegt aðdráttarafl Hvernig var það, vorum við búin að 'ráða' í allar stöður?