Brestur í óstöðvandi grát
Býður Frelsishetjunni smyglaðan Skota til kaups. Pils fylgir.
leiðbeinir tryllu fullri af kössum sem á er ritað "brothætt" inn í smábátahöfnina
Gaman að sjá athafnalífið í blússandi gangi.
Lítur haukfránum augum á grunsamlega trillu
skellir kössunum upp í flutningabíl og flýr af vettvangi
Vantar ekki skargpreinda manneskju í embætti tollstjóra Baggalútíu? Er slíkt embætti til, Vladimir?
Mér sýnist altént ekki veita af nokkrum fílefldum tollvörðum.
Var þarna keisarinn á ferð?
Þetta var bara lítil sending af leikfangaböngsum. Ekkert til að hafa áhyggjur af. Farið að sofa, börnin góð.
sussar blíðlega
Vantar ekki skargpreinda manneskju í embætti tollstjóra Baggalútíu? Er slíkt embætti til, Vladimir?
Nei, slíkt embætti er eigi til en nú er þér nefnið það sjáum vér að brýn þörf er á slíku embætti því oss vantar meiri pening til að halda áfram veislunni í tilefni af 2000. innlegginu, einhver tekur til með reglulegu millibili þannig að vér vorum að ná þessum merka áfanga í 3. sinn rétt í þessu. Tollar eru afar góð fjármögnunarleið. Einhver sjálfboðaliði í embættið - Júlía kannski ?
Ég mæli með Diotallevi. Það kemst ekkert fram hjá honum og það er hægt að múta honum.
Ég mæli með Diotallevi. Það kemst ekkert fram hjá honum og það er hægt að múta honum.
Greinilega gæðamaður...
Þar að auki fer ég alloft með rangt mál á sannfærandi hátt.
Betri mannkostir finnast ekki í fari Tollstjóra. Þú ert ráðinn.
Þá er bara að hafa uppi á Vladimír og láta hann uppfæra listann.
Hiklaust.
Dregur fram hið konunglega sverð og lemur Diotallevi í hausinn með því
Ég slæ þig hér með til Konuglegs Tollstjóraembættis Baggalútíska Heimsveldisins!
Þú færð innsiglað embættisbréf í pósti.