en ég elska þig samt skilyrðislaust.
Eins gott sármóðgaður
svona svona. faðmar eiginmann(?) sinn
Hérna er Admiral og skonsur handa brúðhjónunum. kemur brosandi með eina flösku og fat af skonsum
Ég vil lýsa óánægju minni með að aflýsa þurfti fyrirhugaðri skotveiðiferð í Stjórnarráðshúsið vegna ölvunar ákveðinna aðila. Setur upp reiðisvip
Brúðkaup var á Baggalút,
á biðilsbuxum Hákon.
Hetja Frelsis, hún gekk út,
hamingjunni á von.
[vonandi á hún ekki von á neinu öðru]
Á brúðkaupsnótt þeim brá í brún,
báðir voru að vona,
að hinn myndi reynast hún:
,,ég hélt þú værir kona!"
Keisarinn er kátur í dag,
keisaraynjan líka,
hreppti í hagkvæmisráðahag,
hyllum þá öll sem slíka.
Skemmtilega kveðið undirbýr lítinn lagstúf við kvæðið
Þakka þér kærlega Konstatín. Ljómar upp og brosir út að eyrum það sem eftir er kvöldsins
Oss sýnist Barbie vera að verða sjálfkjörið hirðskáld Baggalútíu, bæði konunglegt og keisaralegt (líklega eigi "forsetalegt" því það hljómar hálf hallærislega). Vér skemmtum oss a.m.k. forsetalega (getum víst eigi sagt konunglega, Hakuchi einn getur það) við lestur undanfarandi innleggs frá kl. 20:11.
Í ljósi undangenginna viðburða veltum vér hinsvegar fyrir oss hvort einhverjir fyrirfinnist hér er nú séu orðnir sammála eftirfarandi fullyrðingu:
Öl er böl
Fær sér últrakóbaltsákavítissopa
Bæði mitt egó og alteregó eru prinsipp bindindiskonur en höfum þó ekki farið í neina meðferð. Verð ég því að teljast sammála ofangreindri fullyrðinu. Hef þó fyrir vana að skipta mér ekki af drykkjuvenjum annarra og vona að þið gerið slíkt hið sama fyrir mig. Þakka kærlega mikið hrós Vladimir, gott að kvæðið fellur í góðan jarðveg.
Eitt hirðskáld? Það fyrirfinnast það mörg gæðaskáld á Baggalúti að þau gætu vel verið fleiri. Samt ekki of mörg.
Eitt hirðskáld? Það fyrirfinnast það mörg gæðaskáld á Baggalúti að þau gætu vel verið fleiri. Samt ekki of mörg.
Hjartanlega sammála.
Öl er böl
Hver ert þú og hvað hefur þú gert við Vlad?!
tekur móðursýkiskast
Öl er böl
Fær sér últrakóbaltsákavítissopa
Ég er sammála Vladimir...
sníkir sopa
svona svona. faðmar eiginmann(?) sinn
Gengur inná á Frelsishetju og Mikinn Hákon GISP! Fellur í yfirlið
stendur upp
Hvah? Við vorum bara að kúra saman og horfa á Two weeks noticeþ
Já enda féll ég í yfirlið vegna þess að sú sýn er við mér blasti vakti hjá mér svo sterka og eldheita ættjarðarást því hvað er fallegra en að sjá Keisarann og keisaraynju Baggalútíu kúrandi og horfandi á hina undursamlegu kvikmynd Two weeks notice.
Með sumarkve... felllur aftur í yfirlið
hringir á lækni
Hvar eru Zoidberg og Gottfriedsen!
Aldrei eru þessir læknar nálægt þegar mikið liggur við. Spurning um að lækka launin þeirra og loka nokkrum deildum?