Eins og kunnugt er hefur ráðuneytið unnið hörðum höndum að því að kóbaltbæta allar landbúnaðarvörur og hefur það gefist einkar vel. Eftirfarandi er listi yfir þær fæðutegundir sem nú þykja hæfar til neyslu eftir kóbaltbætingu:
Rolla
Hestur
Hani
Héri
Gúrka
Papkrika
Epli
Jarðepli
Hið stóra epli
Loðna
Ýsa
Illfygli
Hvalur
Ástarpungar
Kleinur
Hrísgrjón
Hveiti
Belja
...og síðast en ekki síst geirfugl.
Munið svo að hið Baggalútíska innsigli tryggir gæðin!
Nei, ekki svo ég viti. En en stóra eplið er það!
Hvað með skonsuna, Vamban, á ekki að kóbaltbæta hana?
Það er löngu búið, blessaður vertu. Það er greinilegt að þú stundar ekki innkaupin á þínu heimili.
Þessi listi inniheldur engin ilmefni önnur en gúrkuna en ég sit ekki rólegur fyrr en ég fæ alvöru kölnarvatn út á hafragrautinn.
sendir fíknó með
Er ánægður með lymskulegan hugsunarhátt Frelsishetjunnar og ræður hann í embætti Lymskustjóra ÖLÍS
Þessi listi inniheldur engin ilmefni önnur en gúrkuna en ég sit ekki rólegur fyrr en ég fæ alvöru kölnarvatn út á hafragrautinn.
Ég á náttúrulega gígantískar birgðir af kóbaltbættum Admiral og Old Spice. Þér er velkomið að leita til mín eftir kölnarvatninu þar sem þetta fer aldrei á almennan markað.
Ég var að vonast eftir Chanel ilmvatni en þetta ætti að duga í bili.