Nokkuð er um liðið síðan ærleg svallveisla hefur verið haldin hér en nú er til þess margfalt tilefni.
Í tilefni þess að þetta er innlegg nr. 2000 frá oss á þessum vettvangi býður kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðuneytið til risaveislu í ráðherrahöll Baggalútíu. Jafnframt er tilefni til að fagna því að hæstvirtur konungur Baggalútíu fór nýlega í 3000 innlegg.
Lætur senda 20 stóra flutningabíla af hverskyns lífsins lystisemdum til ráðherrahallarinnar ásamt 5 risagámum. Óskar jafnframt eftir að virðisaukaskatturinn verði hækkaður tímabundið um 3% til að fjármagna gleðina
SKÁL !
Á ég að trúa þessu? Einhver annar en ég tekur hér frumkvæðið og heldur veislu! Líst mér á. Ég þakka gott boð, Vladdi minn...
Dembir sér í "ýmsar lystisemdir
Til hamingju með áfangann, báðir tveir.
Hrópum ferfalt húrra fyrir heiðursmönnunum, Hakuchi og Vladimir!
Húrra! HÚRRA! HÚRRA! HÚRRA!
Húrra! HÚRRA! HÚRRA! HÚRRA!
Lætur vaxa á sig nokkra aukaútlimi með barbabrellu til að geta hamstrað sem flest glös og snittur af bökkunum
Skál skál kæru bræður og systur!
Uhhh....er ég of seinn, nei þetta hlýtur að vera tveggja daga veisla...Skál
Nokkuð er um liðið síðan ærleg svallveisla hefur verið haldin hér en nú er til þess margfalt tilefni.
Í tilefni þess að þetta er innlegg nr. 2000 frá oss á þessum vettvangi býður kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðuneytið til risaveislu í ráðherrahöll Baggalútíu. Jafnframt er tilefni til að fagna því að hæstvirtur konungur Baggalútíu fór nýlega í 3000 innlegg.
Lætur senda 20 stóra flutningabíla af hverskyns lífsins lystisemdum til ráðherrahallarinnar ásamt 5 risagámum. Óskar jafnframt eftir að virðisaukaskatturinn verði hækkaður tímabundið um 3% til að fjármagna gleðina
SKÁL !
Geturðu fengið stærri gáma en 40 fet til landsins?
Við ættum að sjálfsögðu að halda okkur við metrakerfið.
40 metra gámar! Ljómar upp
Já það er góð hugmynd, metrakerfi allsstaðar Leggur til að vsk hækki um 1% í viðbót til að fjármagna nokkra 40 metra risagáma með viðeigandi innihaldi
Já það er góð hugmynd, metrakerfi allsstaðar Leggur til að vsk hækki um 1% í viðbót til að fjármagna nokkra 40 metra risagáma með viðeigandi innihaldi
Afhverju Viskí!!! hækkaðu bjórinn frekar um 90%!!!!
AHH hjúkk ég er kominn dálítið í það og sýndist þetta vera 1% af viskí en ekki vsk.
Hjúkket andar djúpt frá sér og slakar all verulega á
Það er ekki hægt að halda veislu án mín!
[setur upp diskókúlu og ljóskastara í öllum regnbogans litum]
[tekur nokkur flippuð dansspor og smellir fingrum]
tekur nokkur Travolta spor
Koma öll í halarófu Nykur, Leia prinsessa og Sirrý á ægilegri ferð á neongrænum hjólaskautum syngjandi VÆ-UM-SÍ-EI!
grípur í axlirnar á Sirrý og hendist áfram
Skellir í sig einum Admiral en kemst svo ekki lengra vegna ölvunar
leggst á bakið og gjörir herbalhumanbodyfountainAfsakiði meðan að ég æli!
Mígur í bolluna og býður stjórnarandstöðunni sjúss
Í tilefni af því að með innleggi þessu förum vér í annað sinn upp í 2000 innlegg (það hefur verið framkvæmd sumartiltekt einhversstaðar) tilkynnist hér með opinberlega að gleðskapurinn er framlengdur fram yfir helgi. Skál !