Hér kemur ein:
Eitt sinn var hér til flugfélag, sem hét Loftleiðir. Á útlenzku kölluðu þeir sig Icelandic Airlines Loftleiðir, skammstafað I.A.L. Hvað sögðu gárungarnir að þessi skammstöfun hefði staðið fyrir?
Ekki það ég muni eftir þessu flugfélagi, en var það ekki "I'm always late"?
Klappar fyrir Útvarpsstjóra og gefur honum rjómabollu Rétt var það. Komdu svo með næstu spurningu og reynum að halda þessum leik gangandi.
Hvað var Laurence Olivier kallaður af fjölskyldu sinni?
gleypir rjómabolluna
Uh... Lalli?
Uuh, nei. En hann fór fram á það að vera ávallt ávarpaður Larry. Hins vegar notaði fjölskyldan annað gælunafn.
Var það eitthvað tengt líkamsvexti hans? (Eða var það Hardy sem var sá feiti?)
Oliver Hardy var vissulega sá feiti og Stan Laurel sá mjói, en þeir félagar eru ekkert tengdir Olivier.
Gælunafnið er ekkert tengt líkamsvexti Oliviers, kannski að þessi spurning sé fullþung.
stelst til að skoða wikipediu Án þess að vera dómharður á móti, þá held ég að þessi sé einum of snúin - þó útiloka ég ekki að einhver gestapói hafi svarið.
Oval?
Jæja, þetta er of snúin spurning. Ég kem þá bara með aðra um Olivier. Hann átti eitt sinn að kynna tilnefningar og sigurvegara í flokkinum "besta myndin" á óskarsverðlaunahátíð. Sökum aldrus gleymdi hann hins vegar að kynna tilnefningarnar og kynnti sigurvegarann strax, hvaða ár var þetta og hvaða mynd vann?
Var hann kallaður Ollie af fjölsk.?
nei
Var það ekki Larry? Larry...Kim eða eitthvað svoleiðis?
stelur réttinum enn og aftur
Hver samdi og útsetti hið undurfallega lag Moonlight Serenade?
Burt Bacharach?
Wolfgang Sebastian Beethoven?