Ekkert blátt, heldur rautt auga í miðjunni. Rembrandt er rétt.
Heitir það ekki "Næturverðirnir"?
En, Dio er næstur og þessi leikur skýrir sig sjálfur og þarf að lulla um stund án mín...ég þarf að hverfa af vettvangi. Gaman að sjá hvort þetta plumar sig..
Las einhvern tíma Alistair MacLean sögu um stuld á þessu málverki
Dægradvöl
Hvað hét karakterinn sem Scott Bakula lék í 'Quantum Leap' þáttaröðinni?
Sam. ásamt hinum stórskemmtilega vindlareykjandi Al the hologram.
Eftirnafnið: nei, þurfti að fletta því upp og telst það þá til svindls.
það er engu líkara en að þeir sem svara rétt hér deyi á vofveiflegan hátt, med det samme,...hmmm...það kann ekki góðri lukku að stýra..Það væri kannski þjóðráð að eiga ávallt eina spurningu tilbúna í handraðanum, ef maður slysast til að ramba á rétt svar
Á þessi þráður ekki betur heima í Leikjum? Þetta getur ekki flokkast sem 'Almennt spjall'.
Á þessi þráður ekki betur heima í Leikjum? Þetta getur ekki flokkast sem 'Almennt spjall'.
Sammála Júlíu, var reyndar að reyna að hafa orð á því hér fyrr, en enginn tók mark á mér...
Þetta er einhver sérviska í Tinna. Stundum skil ég hann ekki.
Þetta er bara tilraun til reynslu...sem er á góðri leið með að renna í vaskinn,enda er músarrottan og músarrottumottan mín að syngja sitt síðasta.....aaaaaaaaaaaaarrrghhhhh!!!!.
Ég var að hugsa um taka mér hollt frí fram að mánaðarmótum á þessum vettvangi almennt vegna anna á öðrum vígstöðvum, enda viðvera mín farin að hafa slævandi áhrif á þjóðarframleiðsluna...
Ekkert er mikilvægara en Baggalútur Tinni minn. Væri ekki nær lagi að losa þig við hinar vígstöðvarnar svo þú getir helgað þig sannleikanum að fullu?
Hefur þú prófað að hreinsa skítinn inni í músinni?
Nákvæmlega. Það er vísindaleg staðreynd að skítur inni í mús hefur slævandi áhrif á þjóðarframleiðsluna.
Einnig geta optical mýs gert kraftaverk við svona aðstæður.
Optical mýs sleikja loðið hundsrassgat! Gamla góða kúlumúsin er ennþá best.
Vitinn er útvarpsþáttur í þessu tilfelli, og því miður var það ekki spurningakeppni heldur getraun.
Hvert er blóðmagn (í % af líkamsþyngd) í meðaljóni?
bónus: nefnið þrjár gerðir af hvítum blóðkornum og starfsemi þeirra??