Já, hér er hraðafærsluleikur 3. En það er bannað að gera eins og í nr. 1 þar sem var 1 orð á hverja færslu. Hér verða menn að sýna háttvísi, snyrtimennsku og um fram allt vera skemmtilegir.
Já, það má nú segja! Tíhí! Eiginlega er þetta svona Hægfærsluleikur á hraða snigilsins. Kannski verður komið eitt innlegg í viðbót á sama tíma á morgun...
Já, það má nú segja! Tíhí! Eiginlega er þetta svona Hægfærsluleikur á hraða snigilsins. Kannski verður komið eitt innlegg í viðbót á sama tíma á morgun...
Já, ef enginn svarar þessu innleggi.
Hengið harðjaxlinn upp á nefinu þar til hann hættir þessum látalátum. Það mætti halda að hann væri frá Staðarstað...
Til að gera þennan þráð bærilegan væri ekki hægt að breyta reglunum í hversu mörg í innlegg þú getur sent hingað á einni mínotu?
Ný regla: hver færsla verður að innihalda a.m.k. 5 orð!!!!
a.m.k. 5 orð! [fer í hláturskast, en hættir allt í einu að hlæja þegar hann tekur eftir því að enginn annar er að hlæja]
Ég skil ekki alveg þennan leik. Hraðafærsla, í hverju felst hún hér?
Á ég kannski að taka tímann á því hversu fljótur ég er að slá inn eina færslu?
Mér sýnist þessi leikur vera að deyja drottni sínum, ef ekkert nýtt gerist þá verð ég að loka þessum þræði...
Ég skal fara með nokkur minnigarorð.
Gott að hafa biskup á svæðinu
Eins gott fyrir þig að Hákon og Ruglubulli lesi ekki þessa færslu þína.
Ég verð víst seint í náðinni hjá þeim kónum.
Já, það virðist vera, en á þessu svæði eru allir jafnir...
Jæja, það er gott að eiga einhvers staðar afdrep.