Þar sem ég aðeins áhugamaður og tilheyri engu ráðuneyti reynist mér efritt að nálgast nægt kóbalt til að starta framleiðslu á Kóbaltskonsum og Kóbalthárilmefnum. Reyndar var mér bent á að gera fyrst könnun á því hvort kóbaltbættar skonsur og kóbaltrík hárilmefni þættu markaðsvænar vörur. Það er allt of skinsamleg hugmynd auk þess sem hún mun sjálfsagt reynast mjög dýr í framkvæmd. Ég hef þó ákveðið að leita eftir skoðunum ykkar á þessu og spurja í leiðinni hvort ég mætti nokkuð fá smá kóbalt til að vinna með?

Þetta er rangt hjá þér, Vambi minn, þú tilheyrir landbúnaðarráðuneytinu... þessi var kannski of grófur
Jæja? Það var enginn að láta mig vita af því. Veður beint í kóbaltnámurnar.
Farðu varlega Vambi minn, það er auðvelt að villast í námunum...
Þú skalt líka minnast máltækisins; Margur verður af kóbalti kvefaður..
Þakka ykkur umhyggjuna drengir mínir.
Er komin fram ný kynslóð hér á Baggalút...verið velkomin sest niður við arininn og sötrar sitt ákavíti og spáir í hvað hann er búinn að sóa lífinu í, fattar það síðan og skálar við sjálfan sig Skál
Vér bjóðum þá nýliða er hér sjást líka velkomna og upplýsum jafnframt að vér gætum hugsanlega séð af örlitlu kóbalti þó frekar kysum vér að nýta það til vopnaframleiðslu, í geimskip og til orkuframleiðslu.
Auðvitað þurfum við vopn og geimskip. Helst vopnuð geimskip. En við verðum líka að kóbaltbæta sem mest ef hin Baggalútíska þjóð á að geta haldið sínum status sem drottnari alheimsins. Skonsur og hárilmefni meðtalin.
ég sé Baggalútíu fyrir mér sem fyrsta alhliða-kóbaltbætta samfélag veraldar.
ég sé Baggalútíu fyrir mér sem fyrsta alhliða-kóbaltbætta samfélag veraldar.
Það er ekki slæmt að hafa keisara með svona háleitar hugsjónir...
Nú, ef við gerum eins og Vamban hefur lagt til, þá erum við á góðri leið með að gera þetta að veruleika. Allur matur verður kóbaltbættur.
Spurning hvort þessi þráður eigi ekki heldur heima í Nýjali og stjarnvísindum.
Spurning hvort þessi þráður eigi ekki heldur heima í Nýjali og stjarnvísindum.
Og þangað skal hann fara...