Einhvern tímann var það nú ákveðið á ríkisstjórnarfundi hvað varðar sendiherra og ræðismenn að aðeins væri eitt slíkt embætti þetta var þá ákveðið vegna hagræðingar og sparnaðarsjónarmiða, en mikið hafði þá grynnkað í "Drykkjusjóð Baggalútíu", sú staða héti þá Sendiherra útlanda. Hvort nokkurntímann var ráðið í starfið man ég eigi, þá helst Vlad sem heldur utan um slíkt.
Það gæti vel verið, en nú eru nýir tímar og öðruvísi aðferðir notaðar. Ef við ætlum að stjórna heiminum verðum við að hafa einhvern yfir hverjum heimshluta til þess að auka völd okkar og hróður. Sendiherrann er nauðsynlegt embætti (að ekki sé minnst á nauðsynleika 800.000.000 króna sendiráðs).
Ætlar enginn að bjóða sig fram?
Framboð mitt stendur þó að umsókn mín um sýslumannsembætti geri það ennig. Og satt að segja er ég öllu hrifnari af því, hvernig er það fer þessari nefndarvinnu ekki að ljúka? Eða var nefndarvinnan yfirhylming svo að málið mætti niður falla?

1. Hvert var framboð þitt?
2. Hvaða nefndarvinnu ertu að tala um?
sötrar kaffi og borðar kleinur
Framboð er ekki rétta orðið, heldur frekar umsókn um sendiherrastöðu. Varðandi nefndarvinnuna þá má sjá keisarann ræða hana hér http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=1993&postdays=0&postorder=asc&start=126.

Ég get því miður ekki svarað með nefndarvinnuna. Þótt að ég sé höfuð og herðar allra nefnda er ég ekki hafinn yfir forsætisráðherra eða keisara. Því er nú ver og miður...
Hvaða sendiherrastöðu má annars bjóða þér?
Eins og ég segi þá kitlar sýslumannsembættið meira þannig ég bíð í ofvæni eftir útkomu nefndarvinnunar og, svo ég endurtaki mig enn frekar, þá yrði stjórnun heimsálfu mér ofviða.
Eins og ég segi þá kitlar sýslumannsembættið meira þannig ég bíð í ofvæni eftir útkomu nefndarvinnunar og, svo ég endurtaki mig enn frekar, þá yrði stjórnun heimsálfu mér ofviða.
Það var að losna sýslumanns staða í Frísey þetta er nú meira svona fangabúðastjó... skemmtanastjóra staða en er þó að nafninu til sýslumannsstaða viljið þér máta hana?
halló halló, ég er þinn háborni herra. Nykur er þinn forsetni herra.
Svei mér þá, að skuli hafa gert svo afdráttarleg mistök. Auðmjúk afsökun, yðar tign.
er hann kannski "hinn forsetti herra"? nú eða "hinn umsetni" herra?
Vér erum reiðubúnir að gerast sendiherra í Asíu þó vér sjáum reyndar þann galla að sum ríki eru bæði í Asíu og Evrópu.
hvaða ríki eigum við í Asíu?
Það reddast. Hugsaðu þetta bara svona; Í Evrópu eru öll lönd sem taka þátt í Eurovision + Georgía, Kazakhstan o.fl.
Annars ert þú inni.
Einhverjir fleiri?
Það reddast. Hugsaðu þetta bara svona; Í Evrópu eru öll lönd sem taka þátt í Eurovision + Georgía, Kazakhstan o.fl.
Nei, Ísrael er eigi í Evrópu sem betur fer en er samt í Eurovision. Svo er t.d. Rússland í bæði Evrópu og Asíu.
Rússland er sögulega séð í Evrópu og tengist restinni af Asíu vart á nokkurn hátt. Tyrkland er í Evrópu, en Ísrael mátt þú eiga...
Rússland er landfræðilega séð að hluta til í Asíu. Saga skiptir ekki nokkru máli í Baggalútíu.
Saga skiptir ekki máli? Hmm...
Allt í lagi. Rússland er nátengdari vestrænni menninu og peningar þess flæða inn og út til annarra vestrænna landa. Annað en t.d. nágrannaríki þess Mongólía sem öllum vestrænum ríkjum er sama um.
Að þessu leyti er Rússland í Evrópu.