hvernig líst ykkur á? labbar í nokkra hringi og spókar sig
Er þetta eins og nýju föt keisarans, því ég sé ekki nokkurn skapaðan hlut annað en ásjónu yðar?
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Jújú, viti menn þar kom þetta. Glæsileiki þinn hefir aukist til muna. Seinna meir gætir þú haldið hönnunarkeppni þar sem þáttakendur fengu þann heiður að skapa nýja kórónu. [/s]
strunsar aftur inn og faðmar Konstantín með tárin í augunum takk..snöktir
Í fanginu á Hákoni Það má ekki bjóða þér drykk í tilefni þessa?
Maður lýtur bara í duftið fyrir öðrum eins virðugleika, herra Keisari. Gæti vart verið betra.
Fyllist lotningu
tekur nokkur létt steppspor í kringum veldissprotann sinn og sest svo í gylltu galeiðuna Áfram, berið mig um bæinn
Þetta er glæsilegasta höfuðfat er vér höfum augum litið hér á Baggalúti. Skálar fyrir keisaranum
Hvaða fjandans höfuðfat? Eruð þið allir með tremma?
Ótrúlegt hvað þið getið smjaðrað fyrir þessari keisaranefnu. Ykkur væri nær að líta upp til skaparans og sýna honum lotningu.
[Biður fyrir illa stöddum stjórnarsinnum]
Ég er enn að reyna að sjá þetta fjárans höfuðfat...
Prófið Control-Refresh
Prófið Control-Refresh
Er ekki hægt ýta á einhverja aðra hnappa til að losna við að sjá þetta kórónuskrípi?
Ég prófaði Any Key en það hjálpaði ekki.
Prófið Control-Refresh
Er ekki hægt ýta á einhverja aðra hnappa til að losna við að sjá þetta kórónuskrípi?
Ef þér brúkið Internet Explorer þá: Tools -> Options -> Internet Options -> Advanced -> Multimedia og hafa þar eigi hakað við "Show pictures". Hverfur þá eigi bara kórónan heldur keisarinn líka. Eini gallinn er sá að allar aðrar myndir hverfa líka.