Bræðralag úlfsins var fín frönsk spennumynd. Sá hana í bíó. Frakkar mættu gera meira af svona myndum í stað þess að týna sér í tilgerðarlegu listrænu prumpi sem öllum er sama um nema einhverju liði sem hefur fengið þá flugu í höfuðið að það líti út fyrir að vera gáfulegt ef það þykist líka og skilja slíkt frat.
Já Bræðralagið var fín þó vér séum kannski svo vanir engilsaxneskum tæknibrellum að oss þóttu hreyfingar skepnunnar stundum svolítið einkennilegar og skrykkjóttar. En fróðlegt þætti oss að vita hvusslags myndir yður þykja vera "tilgerðarlegt listrænt prump". Eflaust telst t.d. hin stórfurðulega Delicatessen nokkuð listræn en skemmtileg er hún þrátt fyrir það (eða vegna þess).
Ég var yfir mig hrifin af Hidalgó í gærkveldi, það er langt síðan ég hef skemmt mér jafn vel í bíó. Þessi mynd hefur allt sem eina mynd má prýða; indíána, arabíska sheika, fallega hesta og aðalleikara, ægifagra náttúru, spennu, drama og gaman.
Meira af svona myndum, takk!
Jeunet myndir eru ekki tilgerðarlegt prump. Þær eru flestar frábærar. Ég er að tala um listaþvælu sem hafa verið gefnar út í tuga ef ekki hundruðavís í Frakklandi og eru svo leiðinlegar að flestar þeirra eru óáhorfanlegar og safnast upp í hillum einhvers staðar.
Ég var yfir mig hrifin af Hidalgó í gærkveldi, það er langt síðan ég hef skemmt mér jafn vel í bíó. Þessi mynd hefur allt sem eina mynd má prýða; indíána, arabíska sheika, fallega hesta og aðalleikara, ægifagra náttúru, spennu, drama og gaman.
Meira af svona myndum, takk!
Já. Einlægt og fallegt ævinýr.
Varðandi skepnuna í Bræðralagi úlfsins (sem var prýðismynd, Mani á lendarskýlunni þó tvímælalaust hápunkturinn): Var skepnan svona illa af guði gerð, eða var hún í brynju? Mér fannst augnsvipurinn benda til þess síðara.
Jú var hún ekki einhverju búningsdrasli? Annars er nokkuð síðan ég sá myndina í bíó.
Skepnan og hinn illvígi húsbóndi hennar minntu mig á níunda bindi hins merka sagnabálks um Ísfólkið norska. Þar hafði morðóður fógeti þjálfað Scheffer-hund sinn til að hlaupa um á þremur fótum og látast vera varúlfur. Skapaði það ótta og ringulreið í samfélaginu svo fógetinn gat myrt meyjar til hægri og vinstri þegar tungl var fullt.
Ekki væri ég hissa þó fransmaðurinn hefði komist yfir bókina og fengið hugmyndina þar.
Og talandi um franskar high-tech myndir þá má ekki heldur gleyma eðalmyndinni "The City Of Lost Children".
Ef maður færi í bíó í kvöld, hvaða ræmu mæliði með...
Ég hef ekki farið í bíó í nokkrar vikur...kíki kannski á þessa, er þetta ekki ævintýramynd í anda Indiana Jones?
Djöfull varð ég fyrir miklum vonbrigðum þegar ég fattaði að Hidalgo var nafnið á hestdjöfulnum
Hvað áttu við? Mér fannst myndin einmitt betri þegar ég áttaði mig á því að Hildago var hesturinn. Hann er óumdeilanlega stjarna myndarinnar, þó Omar og Viggo standi auðvitað alltaf fyrir sínu.
mér fannst "Hidalgo" bara svona... Viggólegra nafn.
Viggo verður nú að skipta um nafn. Það er lífsins ómögulegt fyrir fólk á Norðurlöndum að taka mann sem heitir Viggo alvarlega. Það er auðvitað út af hinum óborganlega Viggó Viðutan.
Hvað með Chuck Mortensen? Það er butch nafn.
Hvað með Jesper Mortenssen? Mér finnst hann ekki mega fórna sínum hálfdanska sjarma...ja, en passandi að hann leikur kynblending í Hidalgó, verandi svona blandaður sjálfur!
Heyrðu, hvernig er Cold Mountain? Á ég að sjá hana í bíó eða bara leigja hana síðar?
Jesper er of líkt Jasper, sbr. Kasber, Jasper og Jónatan. Þá væri hann að fara út öskunni í eldinn.
Christian Mortensen? Poul Mortensen? Nei, Uffe Mortensen.
Hef ekki fengið mig til að sjá Cold Mountain. Sá sýnishornið og myndin virkaði eins og flatneskjuleg apparat, sérlega hannað til að vinna óskara. Auk þess gat ég ekki annað en skellt upp úr þegar ég heyrði Jude Law (öðlings leikari annars) og Kidman vera að tala með sprenghlægilega ýktum Suðurríkjahreim, þau hljómuðu eins og þau væru 6 ára börn að rembast við að vanda sig að lesa upphátt upp úr bók.