Hann reiðir ekki vitið í þverpokum.
Hann hrasar ekki um gáfurnar.
Uppáhaldsútvarpsstöðin hans/hennar er FM 957.
Eða ég held að uppáhaldsmyndin hans/hennar sé Weekend at Bernies.
Eða bara sannleikann: Hugurinn hvítur sem snær, hann er tómur frá höfði´oní tær.
Eigið þér við mig?
Ef skórinn passar....;-P

Jæja, nú hefi ég gjört mig að fífli. Ég var það upptekinn að sjálfum mér að efnistök þráðarins gleymust. Afsakið. Fer skömmustulegur af sviðinu
"Mér heyrðist hann hrista hausinn", svipaður frasi olli miklu fjaðrafoki á Alþingi fyrir einhverjum árum ef minnið svíkur oss eigi.
Enda hneykslanleg málvilla. Sem minnir mig á það, ég heyrði "þeim dreymir" á Rás 1. Það hefði mátt þola yfirlestur. Skammarlegt.
Uppáhaldsútvarpsstöðin hans/hennar er FM 957.
Eða ég held að uppáhaldsmyndin hans/hennar sé Weekend at Bernies.
Eða bara sannleikann: Hugurinn hvítur sem snær, hann er tómur frá höfði´oní tær.
Eigið þér við mig?
Ef skórinn passar....;-P
Jæja, nú hefi ég gjört mig að fífli. Ég var það upptekinn að sjálfum mér að efnistök þráðarins gleymust. Afsakið. Fer skömmustulegur af sviðinu
afsakið þér konstatín, hélt að brögð væru í tafli eða sem á engilsaxnesku er nefnt tricky question. Engin þörf að skammast sín enda allt sagt í gríni. [brosir sínu blíðasta]
Brögð í tafli? Ég reyni nú ætíð að koma heiðarlega fram. Hneigir sig og tekur ofan
[telst vera stríðin en vonandi laus við illkvittni]
Hann er allur þar sem hann er séður - honum fer vel að vera einfaldur.
Hún ríður við einteyming á bikkju.
Maður kemur alltaf að tómum kofanum hjá honum.
Það er hægt að segja eftirfarandi:
Þú ert ekki óvitlaus.
Þetta svínvirkar, margir átta sig ekki hvort sé um last eða lof að ræða, sumir þakka mér fyrir hlý orð í þeirra garð.
Sælir eru heimskingjar, þeir vita ekki hvað þeir eru vitlausir.
Sigurður vill meina: "Sælir eru heimskingjar, þeir vita ekki hvað þeir eru vitlausir."
En ég hef heyrt þetta svona: "Sælir eru fattlausir, þeir fatta ekki hvað þeir eru vitlausir".
Hann er algjört naut að líkamsburðum og vitsmunum.
Hver man ekki eftir Prince George úr 4.seríu Black Adder þáttanna en þessa snilld sagði hann þar svo eftirminnilega: "..and I´m not over-fournished in the brain department"