Til að gæta jafnvægis þá legg ég til að við komum okkur upp vinalista Baggalútíu. Það auðvitað gengur ekki að okkar ástsæla Baggalútía eigi sér enga banda- eða stuðningsmenn utan ríkisins. Legg ég til að stofnað verði t.a.m vínbæjarsamband við baunabæinn Álaborg af gefnu tilefni og þeir sendi okkur sem vott um þeirra vináttu eina 20 metra ákavítisflösku á gamlárskvöld ár hvert. Hvað við sendum svo til baka er algjört aukaatriði svo framanlega að við fáum bokkuna!
Lithaen? Vatikanið? Lichtenstein? Öll þessi ríki væru hernaðarlega ómetanleg!
Lithaen? Vatikanið? Lichtenstein? Öll þessi ríki væru hernaðarlega ómetanleg!
Ég skil barnslegan ákafa þinn Hilmar minn, en spurningin er; Viljum við vera vinir þeirra?
Jú hann er ágætis "gaur" en það yrðu stutt kynni, nánast skyndikynni, hann á nú ekki langt eftir blessaður kallinn. Við verðum að horfa til framtíðar með þessum vinaböndum, þannig að Vatikanið er út. Nema auðvitað að þau hafi e-ð meira spennandi að bjóða en gamlan pólverja. Eru þetta allar tillögurnar sem við fáum á þennan vinalista Baggalútíu? Það er allt jing og jang farið úr skorðum ef við eigum þessi ógrynni af óvinum og aðeins Álaborg í Danmörku teljist til vina okkar.
Páfinn er nú þekkt afturhald ég er ekki viss um að við ættum vera með honum í félagi.
við gætum kannski komið fyrir páfa á vegum Baggalútíu þegar hinn er dauður. Þá geri ég náttúrulega ráð fyrir því að mannskrattinn drepist einhverntímann.
hmm... ég þarf að hugsa um það.
Það væri gott ef hann gæti dáið einhverntímann í sumar. Síðan gætum við komið Páfa á okkar bandi þangað inn.
Þá náum við Vatíkaninu á okkar vald!
MÚAHAAHAHAHAHAHA
Já e-ð stendur í þeim þessum óperettudátum. Annars eru margir dýrgripir geymdir í Vatikaninu ef e-ð er að marka þá góðu bók Da Vinci lykilinn.
Vér viljum vara við að vinalistinn verði of langur því Baggalútía er og/eða verður stórveldi og það er óeðlilegt ef stórveldi á fleiri vini en óvini.
Vér viljum vara við að vinalistinn verði of langur því Baggalútía er og/eða verður stórveldi og það er óeðlilegt ef stórveldi á fleiri vini en óvini.
Það er víst lítil hætta á því eins og staðan er í dag á Baggalútía einn vin utan landsteina en það er borgin Álaborg í Danmörku. Það er þó með þeim skilmálum að þeir sendi okkur 20 metra ákavítisflösku hver áramót þ.e. við setjum þá skilmála fyrir vinskapnum.
Ég hef auglýst eftir fleiri vinum en lítið hefur borist um af hugmyndum þó hefur frk. Júlía óskað eftir viðræðum við Vatikanið um vinasamband og einhversskonar skiptinema prógrammi við þá þannig að þeir sendi okkur/henni svissneska lífverði Vatikansins, hvað í dauðanum Júlía ætlar sér með þá er mér hulinn ráðgáta. En eins og fyrr segir þá þarf ekki að hafa áhyggjur af löngum vinalistum. Kærar þakkir þó fyrir góða ábendingu eins og alltaf Vlad.

Hvað í dauðanum ég ætli mér með svissnesku lífverðina? Þarf að spyrja að því? Hin grunsamlega vanheilsa konungs vors hefur vakið mér ugg og óttast ég nú að fjendur vorir sitji um líf hans. Hinn fjórtán ára gamli systursonur konungs er efstur á lista grunaðra, en eðlislæg tortryggni mín veldur því að ég óttast að fleiri óvinir ásælist krúnuna. Því tel ég nauðsynlegt að fá konunglega lífverði sem fyrst. Hinn mjög svo gamlaði páfi þarf ekki á svisslendingunum að halda mikið lengur, er ég hrædd um.
Vér viljum vara við að vinalistinn verði of langur því Baggalútía er og/eða verður stórveldi og það er óeðlilegt ef stórveldi á fleiri vini en óvini.
Ég sé engan vinalista enn, það veit líklega á gott. Ljómar til hægri