Í ljósi frekra fjáröflunaraðferða ónefnds og óbarins biskups Baggalútíu, kallaði ég saman nefnd til þess að ræða og ráða mikilvægt málefni. Þ.e. aðskilnaður alls sem tengist ríki, og alls sem tengist kirkju og trú. Ákveðið var með hreinum meirihluta að afskipti milli þessara tveggja hluta yrði slitið frá því sem þau hafa verið frá upphafi stjórnunar. Engin kirkja mun hljóta pening úr ríkissjóð eða á nokkurn hátt frá móðguðum skattborgurum, og kirkjan mun verða einkavædd og rekin sem fyrirtæki, með hverri þeirri fjáröflun sem henni er löglegt.
Þrátt fyrir það, mun yfirstjórnun hennar enn heyra undir ríkisstjórn, og mun embætti kirkjumálaráðherra standa óhaggað. Öll embætti undir kirkjumálaráðuneyti munu ennfremur standa óhreyfð.
Nefndin telur að þessi breyting sé nauðsynleg til þess að stjórnunaraðferðir verði í takt við tímann, þ.e. engin fjárútlát, en nóg fjárstreymi inn í svallsjóð ríkisstjórnar.
Með bestu kveðju,
Ruglubulli Engilríðarson
--------------------------
(undirskrift nefndarmálaráðherra)
Þetta er of seint draugsi kirkja og ríki hafa aldrei verið sameinuð í Baggalútíu
Hver er goggunarröð Baggalútíu? Fær keisari, forseti, forsetisráðherra eða sjálfur kirkjumálaráðherra ekkert um málið að segja?
Þá er þetta of snemmt ekki of seint.
Allt sem Ruglubulli segir hér að ofan eru augljós rök fyrir tíundinni, sem ég hef nú lagt á þegnana. Þannig er hægt að skilja biskupsembættið frá ríkinu og gera það sjálfstætt. Aðskilnaður ríkis og kirkju í sinni skírustu mynd.
Þegiðu klettur, þetta er bara undirstrikun á ólögmæti aðgerða Hafraflónsins.
Til að svara þér Konstantín, vil ég fyrst spyrja hversu langan tíma þú hefur til þess að hlusta á útskýringar...
Konstantín ef þú ætlar að hlusta á útskýringar ruglunbulla, þá heyri ég í þér aftur með haustinu, og þar fyrir utan er þetta bara bull hjá honum
Hvar er nú Mikill Hákon? Hann, var að lýsa eftir spennu hér einhvers staðar. Nú held ég að færist fjör í leikinn.
[Setur biskupshempuna fyrir andlitið og hlær]
Hafraflón, aðeins ríkið hefur stjórnarskráarlegan rétt til þess að ræna af skattborgurum!
Leiktu þennan leik lengra og þú verður hrókeraður og maulbarinn biskup!
Hafraflón, aðeins ríkið hefur stjórnarskráarlegan rétt til þess að ræna af skattborgurum!
Leiktu þennan leik lengra og þú verður hrókeraður og maulbarinn biskup!
Ég hræðist hvergi og mundu að ég hef einnig tekið mér vald til bannfæringa.
Nú skalt þú vara þig.
Bannfæringar!? Þú hefðir ekki einu sinni getað bannfært mann á myrkustu miðöldum með þennan baunasvip á andlitinu á þér! Burtséð frá einhverri biskupshempu. Það er hægt að kaupa það drasl útí Leikbæ!
Allaveganna höfðu menn á því vit á miðöldum að bera út vandræðabörn.
drekkur ákavíti og spýtir í átt að Hafraflóninu
Hvað er ríkisvaldið að skipta sé að andlegum málum
Þeirri spurningu hefur verið svarað. Ríkið ætlar ekki að skipta sér af klæðskiptingum og hempuklæddum baunum.
[Hugsar um hvað hefði orðið um Ruglubulla hefði hann fæðst á miðöldum]
Þarft þú ekki að fara að lesa þér eitthvað til um mannasiði Ruglubulli litli?
[Hugsar um hvað hefði orðið um Ruglubulla hefði hann fæðst á miðöldum]
Þarft þú ekki að fara að lesa þér eitthvað til um mannasiði Ruglubulli litli?
Ég brýt þó allaveganna ekki lög til þess að fjármagna eigið svall...

Og hvað er svo sem ólöglegt við tíundina þegar búið er að aðskilja ríki og kirkju? Mér sýnist þetta hið besta mál.

Það væri svipað og að Nettó kræfist þess að allir landsmenn keyptu sér kippu af Nettó-Cóla á mánuði = Ósiðlegt.