Hér með er mönnum boðið að segja af sér, Ráðherra- og embættismanna störfum. Áður en illa fer fyrir þeim
ertu að hóta okkur apinn þinn!?
rólaðu þér.
Hvað ég hélt að þú værir komin á þennan þráð til að segja af þér
Nefnd sem ég skipaði komst að þeirri niðurstöðu að samkvæmt 11,467. grein stjórnarskrár Baggalútíu þá telst biskup hafa opinberlega sagt af sér ef hann birtist í þræði sem þessum. Ennfremur telst hann réttdræpur ef hann segir eitthvað.
Ekki láta mig þurfa að útskýra nauðsyn þessara laga. Þetta er ekkert persónulegt gagnvart núverandi biskup, heldur var þessi grein hluti af Járnsíðu þegar hún var fyrst gefin út, og tengist einhverjum biskup í fyrndinni. Sagan segir hinsvegar að sá biskup hafi verið dani...
jæja þá hefur ruglubulli sagt af sér Hoppar upp af kæti
Ekki fagna of snemma, grænnefur. Ég hef aldrei sagst ætla að segja af mér, og þótt að þið mynduð plata mig á einhvern barnalegan hátt til þess að segja af mér, þá þyrftuð þið hvort eð er að ná mér og henda mér út til þess að losna við mig.
Ef þú ert að ruglast eitthvað á innihaldi fyrri innleggs míns hér, þá ertu opinber hálfviti. Ég skal meira segja votta upp á það og gefa þér skírteini.
Nefnd sem ég skipaði komst að þeirri niðurstöðu að samkvæmt 11,467. grein stjórnarskrár Baggalútíu þá telst biskup hafa opinberlega sagt af sér ef hann birtist í þræði sem þessum. Ennfremur telst hann réttdræpur ef hann segir eitthvað.
Ekki láta mig þurfa að útskýra nauðsyn þessara laga. Þetta er ekkert persónulegt gagnvart núverandi biskup, heldur var þessi grein hluti af Járnsíðu þegar hún var fyrst gefin út, og tengist einhverjum biskup í fyrndinni. Sagan segir hinsvegar að sá biskup hafi verið dani...
Ruglubull hefur víst sagt af sér!
Hilmar, ef þú ert að vísa í nefndarniðurstöðuna, þá stendur það skýrt og greinilega með lagaletri að hér er átt við embætti biskups, ekki nefndarmálaráðherra.
Enda hafa aldrei verið danskir nefndarmálaráðherrar í stjórnun Baggalútíu.
En þú sagðir "af sér"
Í ljósi vináttu okkar í fortíðinni, Hilmar, mun ég ekki kála þér fyrir svo yfirgengilega pirrandi útúrsnúninga.
Tekur hausverkjapillur og bölvar því að hann sé eini stjórnarmeðlimur innskráður á móti 3+ andspyrnumönnum
Það er ljóst að það segir enginn af sér hér, þessvegna legg ég til að mér verði veitt leyfi til þess að eyða þessum þræði.
Nei, þessi þráður er einmitt gott sönnunargagn fyrir samheldni þeirri og einhug er einkennir ríkisstjórn Baggalútíu.
ókei... setur upp vonskusvip og tekur fingurinn af rauða takkanum