allt í lagi, er eitthvað vitað um hvenær hann snýr aftur?
Það er nokkuð óljóst. Búið er að lagfæra bilunina í kútnum en eftir stendur að meta og lagfæra sálrænan skaða sem hann hefur orðið fyrir út af biluninni. Eins og er er hann í það slæmu sálrænu ástandi að hann hefur talið sér trú um að hann sé yfir Baggalút hafinn og vilji ekkert af honum vita. Við munum reyna raflostmeðferð til þess að slá þá bábilju út úr honum.
Vér höfum breytt ráðherra- og embættismannalistanum til samræmis við nýjustu atburði.
Varðandi keisaraynju þá hefur Ormlaug eftir því sem vér best vitum eigi sést lengi.
Síðan þarf að ganga frá forsetaembættinu.
Ég býð mig hérmeð fram sem forseta Baggalútíu. Forsetafrú hlýtur að vera hægt að finna einhversstaðar.
Vér getum líka hugsað oss að verða forseti.
Með fullri virðingu fyrir öðlingnum ruglubulla, þá tel ég að Vladimír sé best að því kominn að vera forseti. Hann átti drjúgan þátt í sköpun ríkisins og hefur verið óþreytandi málsvari þess alla tíð.
Geri ég það að tillögu minni að Vladimír verði gerður Forseti Baggalútíu.
Vér leggjum til að bætt verði við keisaraynju fyrir Mikinn Hákon. Síðan væri eigi vitlaust að bæta við forsetaembætti líka og eru eflaust margir er áhuga hefðu á slíku embætti. Þar með er búið að koma upp fullkominni þrígreiningu ríksivaldsins í Baggalútíu:
(1) Kóngur/drottning
(2) Keisari/keisaraynja
(3) Forseti/forsetafrú eða Forseti/"forsetaherra"
Má ekki bara koma þessu í kring. Hafa fjögurþætt ríkisvald:
1 Kóngur og drolla
2 Keisari og frú
3 Forseti
4 Forsetaherra.
Ég bara spyr?
Svo má vekja á því athygli að hér eru tveir forsætisráðherrar en einn þeirra hefur eigi sést lengi svo e.t.v. væri ástæða til að bæta þeim þriðja við.
Svo má vekja á því athygli að hér eru tveir forsætisráðherrar en einn þeirra hefur eigi sést lengi svo e.t.v. væri ástæða til að bæta þeim þriðja við.
Hver? Ég þá?
Roðnar og flissar eins og smástelpa
En á ekkert að gera í biskupsmálinu? Hversu lengi þarf ég að bíða eftir útnefningu?
[Horfir niðurlútur á tær sér og roðnar]
En á ekkert að gera í biskupsmálinu? Hversu lengi þarf ég að bíða eftir útnefningu?
[Horfir niðurlútur á tær sér og roðnar]
Þangað til að einhver verðugur bíður sig fram...
Herbjörn fær mitt atkvæði. Besti biskup síðan Jón Arason var og hét.
En á ekkert að gera í biskupsmálinu? Hversu lengi þarf ég að bíða eftir útnefningu?
[Horfir niðurlútur á tær sér og roðnar]
Þangað til að einhver verðugur bíður sig fram...
Það er eins og ég hef margoft sagt, sumir fá embættin hér á silfurfati meðan aðrir fá ekkert nema skítkast og óverðskuldaðar þjóðernisofsóknir.
Ég er ekki Dani, reynið að troða því í hausinn á ykkur.

Það minntist enginn á dana hérna. Ertu kannski byrjaður að neita þessu of mikið?
Með fullri virðingu fyrir Ruglubulla, sem hefur unnið ómetanleg verk í þágu ríkisins, þá verð ég að kjósa Vladimir. Vladimír hefur einfaldlega meiri reynslu í málefnum ríkisins og átti, eins og Hakuchi segir, drjúgan þátt í sköpun þess. Hann er líka sjóaður í því að takast á við skyndileg hitamál og uppreisnir.
býður Ruglbulla í kokteil
Það minntist enginn á dana hérna. Ertu kannski byrjaður að neita þessu of mikið?
Ég bið forláts, kannski var þetta í öðru innleggi í allt öðrum þræði. Mér finnst bara eins og það sé alltaf verið að gera mig danskan.
Þiggur kokteil af Hákoni
Jæja, jæja. Ég vil þá bara óska félaga Vladimir til hamingju með embættið. Hann er verðugur maður og á allt gott skilið.
En ekki er enn búið að ljúka málinu með embætti forsetaherra (sem fjórða vald) eða þriðja forsætisráðherra. Standa þau til boða?
Starir með eftivæntingarfullum augum á fólkið í kringum sig
Er ekki áróðursmálaráðherra 4. valdið ? Hann hefur hinsvegar eigi sést síðan á síðasta ári.
Er ekki áróðursmálaráðherra 4. valdið ? Hann hefur hinsvegar eigi sést síðan á síðasta ári.
Hann er það ekki samkvæmt þinni greiningu hér fyrir ofan. Ef svo er, þá köllum við hann bara fimmta valdið...