Vér höfum af því áhyggjur að þjóðaröryggi sé eigi sinnt sem skyldi í Baggalútíu. Leggjum vér því til að gripið verði til fyrirbyggjandi aðgerða til að hindra að stjórnarandstaðan, þið-vitið-hver, Hafþór Hübner o.fl. eigi möguleika á að gera hér óskunda. Þarf því að efla ÖLÍS, hverskyns eftirlit og njósnastarfsemi og hafa undir sérstöku eftiriliti alla þá aðila er líklegir eru til að geta orðið óvinir ríkisins í framtíðinni, jafnvel þó þeir séu eigi orðnir það á þessari stundu.
Þetta eru orð í tíma töluð. Ég vil bjóða fram krafta mína til að efla öryggi Bagglýtinga, ég hef yndi af samsæriskenningum og sé fjendur í hverju horni, einkum ef ég er illa sofin.
Svo fannst mér Mata Hari alltaf flott Starir þegjandi út í loftið .
Mætti ég kanski leggja til opinberar aftökur á óvinum okkar Starir þegjandi út í loftið
Eitt er aftökur á óvinum, annað er að finna þá; það er nauðsynlegt sem fyrsta skref.
Hér er ég.
Verandi yfirlýstur óvinur og andstæðingur ríkisstjórnarinnar stafar lítil hætta af þér, Herbjörn. Það eru þeir sem fara um með fagurgala sem við þurfum að óttast Lítur flóttalega í kringum sig og treystir fáum, ef nokkrum.
[Starir sakleysislega út í loftið og flautar falskt]
Greyið er að verða batteríis-laust.
Verandi yfirlýstur óvinur og andstæðingur ríkisstjórnarinnar stafar lítil hætta af þér, Herbjörn. Það eru þeir sem fara um með fagurgala sem við þurfum að óttast Lítur flóttalega í kringum sig og treystir fáum, ef nokkrum.
Satt er það Júlía, ekki fer ég með ófriði. Kannski eru verstu óvinirnir einmitt innan raða stjórnarsinna, menn sem vega úr launsátri þegar enginn á sér ills von.
huhhh þetta er nú ekkert mál. Tökum bara af lífi þriðja hvern mann sem ekki gegnir opinberum störfum í Baggalútíu. Tölfræðin segir okkur að þannig eigum við að ná nokkrum stjórnarandstæðingum.
Þetta mun líka auka andstöðu almúgans við stjórnarandstöðuna og skelfa stjórnarandstæðinga frá aðgerðum
Hallar sér aftur og lætur hugann reika, sæll og glaður