Vill einhver segja mér hver í glimrandi gúllasi var að fikta í veðurtækjum hins Baggalútíska heimsveldis?
Þú afsakar Hákon minn, ég var að sýna konunum í saumaklúbbi nektardansmeyja veðurmaskínuaðstöðuna í gærkvöldi. Eitt leiddi af öðru, kokteill hér kokteill þar og það endaði með að ein konan tók sveiflu uppi á takkaborðinu og rakst í nokkra takka.
Ég er með menn í að redda þessu.
En djöfull var gaman, ég er úrvinda.
ahh, þetta er víst komið í lag. Ætli maður geti ekki litið fram hjá þessu þegar þetta var gert í góðum tilgangi.
Vér lítum svo á að veðurtilraunastarfsemi þessi hafi verið nauðsyn og fögnum vér því að í dag hefur bæst við snjór. Satt að segja vorum vér farnir að hafa af því nokkrar áhyggjur að sá hluti veðurmaskínu Hakuchis er sér um snjó virkaði eigi en oss er núna stórlega létt við að sjá að þær áhyggjur voru ástæðulausar.
Mér fannst nú óþarfi að láta snjóa á afmælisdegi mínum. Blótar herfilega og rífur hár sitt [/s]
Mér finnst nú óþarfi af þér að eiga afmæli!
Það er eigi óþarfi en afmælisdagar eru eigi ófæranlegir sbr. að Kristur mun eigi fæddur 24. desember. Svo ef yður líka eigi veðrið á afmælisdaginn færið hann þá til, t.d. fram á hásumar.
Veðramaskínan hefur verið að láta illa eftir partíið í vélarúminu. Svo virðist sem snúningsherpillinn hafi orðið fyrir hnjaski sem á móti hefur tætt upp vafningseinangrunina með tilheyrandi áhrifum á kristalsjónunargervilinn.
Af þeim orsökum biðst ég afsökunar á áframhaldandi snjókomu. Ég fullvissa ykkur um að þetta eigi að vera komið í lag á næstu dögum, ég hef flutt inn toppverkfræðinga frá Rússlandi og Frakklandi til þess að laga þetta, ásamt því að hafa sent fyrra viðgerðarteymið í fangabúðir.
frábært, frábært.
Öllu þykjast nú þessir stjórnarsinnar geta stjórnað að vild, veðrinu líka. Hvílíkt ímyndunarafl.
Herbjörn, þú ættir bara að hafa þig hægan. Við getum líka stjórnað lífum.
"slekkur" á Herbirni
Ég hræðist ekki orðagjálfur ykkar og marklausar hótanir. Hversu fast sem þið sækið að mér mun ég ávallt standa hnarrreistur gegn stjórninni.
djöfullinn danskur, mannlífavélin líka biluð? helvítis djöfull.
hringir í klón Helga Pjeturss
Já, já komiði bara veifiskatarnir ykkar og reynið að beygja mig og Andspyrnuna í duftið. Við skulum svo spyrja að leikslokum.
Oss finnst nóg komið af snjó en veltum fyrir oss hvað mögulegt sé að hafa svona snjókomu staðbundna. Er hægt að láta snjóa eingöngu þar sem stjórnarandstaðan er til húsa ?
Það er möguleiki Vladimir, en til þess þyfti stjórnin að fjárfesta í spindilvindustýribúnaði en hann ætti ekki að kosta meira en þriðjung landsframleiðslunnar í ár.
Það er möguleiki Vladimir, en til þess þyfti stjórnin að fjárfesta í spindilvindustýribúnaði en hann ætti ekki að kosta meira en þriðjung landsframleiðslunnar í ár.
Endilega að fjárfesta í "spindilgimmikinu" það er vel þess virði, en gætið að drykkju og partýsjóðnum það má ekki hreyfa við honum.
Annars er líka hægt að henda snjó í stjórnarandstöðuna svona manjúalt, það fást ábyggilega einhverjir dáðadrengir til þess að elta þau Herbjörn og feminista og kasta í snjóboltum fyrir nokkrar böggur.
Ég skrapp í Borgarfjörðinn í dag og þar var 30 cm jafnfallinn snjór og bætti stöðugt í. Ekki vænti ég að Hakuchi hafi komið þar nálægt. Og hafi svo verið, hvernig vissi hann um ferðir mínar? Starir þegjandi út í loftið