— GESTAPÓ —
Svaðilför til nýlendna
» Gestapó   » Baggalútía
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/3/04 13:02

Vér létum oss hverfa um stund öryggis bæði vors vegna svo og til að blekkja óvini ríkisins og halda uppi njósnum um óvini Baggalútíu.

Héldum vér fyrst til Færeyja er vera áttu á valdi Baggalútíu. Svo reyndist eigi vera nema ofanjarðar því undir eyjunum er neðanjarðarhvelfing svo mikil að eigi sér til lofts eða enda á milli. Eru íbúarnir flestir þar og er ljóst að þegar í stað þarf að hefja umfangsmestu jarðgangagerð Baggalútíusögunnar frá Austurlandi til Færeyja til að auðvelda innrás.

Norðmenn eru að ljúka smíði afkastamikillar kóbaltverksmiðju í "flaki" Guðrúnar Gísladóttir en skipsstrand þetta var risastór blekkingarleikur í því skyni að koma umræddri verksmiðju upp án grunsemda frá umheiminum. Mun ætlunin síðan vera að framleiða þar ýmis ógnvekjandi tól og tæki er Blástakkur þyrfti að komast yfir. Þarf því þegar í stað að senda þangað sérsveit og auglýsum vér hér með eftir sjálfboðaliðum.

Nýlendu vora í Afríku reyndist oss eigi unnt að kanna nema úr fjarlægð með
njósnagerfihnöttum. Reyndust óvinir Baggalútíu óæskilega uppivöðslusamir þar og er ljóst að þar sem annarsstaðar þarf að gríða til aðgerða gegn óvinum ríkisins.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hilmar Harðjaxl 26/3/04 13:04

Færeyingar sem hugsa?! Ómögulegt! Hugmyndin er fráleit!

Það er ekkert sem getur ekki stöðvað mig!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 26/3/04 13:23

‹tekur færeying, opnar munninn á honum og öskrar inn: "IS THERE A SOUL IN THERE!?"›

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/3/04 13:26

Hilmar Harðjaxl mælti:

Færeyingar sem hugsa?! Ómögulegt! Hugmyndin er fráleit!

Hvernig fenguð þér það út að Færeyingar hugsuðu ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 26/3/04 13:27

eitthvað hlýtur að búa að baki þessari neðanjarðarstarfsemi.

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/3/04 13:32

Í því sambandi má velta fyrir sér hvort moldvörpur hugsi.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hilmar Harðjaxl 26/3/04 13:35

Góður punktur, dýr geta ekki hugsað. Aðeins hinn hvíti maður getur hugsað, og það á ekki einu sinni við um alla.

Það er ekkert sem getur ekki stöðvað mig!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fári Egilsson 26/3/04 16:22

Hilmar Harðjaxl mælti:

Góður punktur, dýr geta ekki hugsað. Aðeins hinn hvíti maður getur hugsað, og það á ekki einu sinni við um alla.

Virðist reyndar ekki eiga við um nema örfáa þegar maður pælir í því.

Brunamálaráðherra og Forhirðir • If you can't beat them, burn them!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hilmar Harðjaxl 26/3/04 16:24

Aðeins þá útvöldu af Guði.

Það er ekkert sem getur ekki stöðvað mig!
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: