djöfullinn danskur!
Var ekki einhversstaðar og einhverntíman listi yfir ykkur friðarins menn? Hvaða þráðum ráðið þið?
Annars furða ég mig sífellt á því að menn eins og Vladimir og Hákon skuli ekki vera hærri á þeim guðsvolaða lista, þeir hafa yfirleitt eitthvað að segja um flest málefni...
Það sem vér höfum a.m.k. um þetta málefni er að segja er að vér myndum eigi syrgja það að þræði þessum yrði hent heldur þvert á móti fagna því. Jafnframt væri til upprifjunar forvitnilegt að grafið yrði upp hver er friðargæsluliði hér.
Hef það á tilfinningunni að friðargæsluliði þessa svæðis, sé frekar lítið viðstaddur...jafnvel svo lítið að ég man ekki hver það er.
Var ekki Frelsishetjan friðargæsluliði einhversstaðar ? Hann hefur eigi sést í háa herrans tíð.
Þú hefur útlitið með þér. Var ekki Frelsishetjan með þína karlmannlegu ásjónu áður en hún veslaðist upp?
Mér skilst að listinn sé þessi:
Almennt spjall - Vladimir
Efst á baugi - Skabbi
Umvandanir, ábendingar, tilmæli - ???
Baggalútía - Hákon
Nýall, stjarnvísi og kóbalt - Hakuchi
Kveðist á - Barbapabbi
Þýðingar, speki og orðsnilld - ???
Sögur, gátur, leikir og dægradvöl - ???
Frelsishetjan er friðargæsluliði, Albert líka, man ekki hvaða þræði þeir stjórna eða hver sá þriðji er...
lagfærið þeir sem vita betur...
Albert þessi og Salvador hafa ekki sést hér í mínu minni og hef ég þó dvalið hér um allnokkurt skeið.