— GESTAPÓ —
Fólskumálaráðuneytið
» Gestapó   » Baggalútía
     1, 2  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 23/3/04 18:42

Fólskumálaráðuneytið
Blástakkur Fólskumálaráðherra
Leibbi Djazz Skjalastjóri Fólskumálaráðuneytið

Fólskumálaráðuneytið er fólskara en þið öll til samans! Starfsmenn bjóða Fólskumálaráðherra sinn velkominn aftur, frá þeIM djöflastað þar sem hann festist í Kóbalthliðrunartímaferli!

HÚRRA!

HÚRRA!

HÚRRA!

HÚRRA!

húrra!

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blástakkur 23/3/04 18:52

Ég þakka ... til að fagna býð ég upp á sérstakan drykk sem ég hef blandað sjálfur.

‹Glösin reykja sérkennilega og eitt þeirra lekur niður í poll sem étur sig í gegnum borðið›

Heh heh! Þið afsakið en ég notaði kannski fullmikið af soda stream í þetta.

Blástakkur Lávarður • Fólskumálaráðherra • Formaður Félags Illmenna og Hrotta • Samhæfingarstjóri hinna keisaralegu aftökusveita • Krjúpið fyrir Blástakk!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 23/3/04 18:55

‹reynir að opna augun›

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 23/3/04 18:57

Í almáttugs bænum, farðu að skipta um mynd Leibbi! Það er hörmung að sjá þig. ‹Hvessir augun illilega í átt að Leibba, sem ekkert sér, enda með lokuð augun.›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 23/3/04 19:02

Þú verður nú að viðurkenna að þetta er ekki mjög Bjúrókratísk mynd Leibbi minn. Alvöru bjúrókrati sem tekur sig alvarlega er afar stífur, reglufastur, þunglyndislegur, og fram úr hófi snyrtilegur í útliti.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 23/3/04 19:03

Júlía mælti:

Í almáttugs bænum, farðu að skipta um mynd Leibbi! Það er hörmung að sjá þig. ‹Hvessir augun illilega í átt að Leibba, sem ekkert sér, enda með lokuð augun.›

‹Tekur upp pocket-exi› Ef þú með þína ljótu skanka ferð ekki að láta mig í friði Fröken Róberts, að þá fer ég gera grín að börnunum þínum! Nei, haa.. áttu engin?

‹eitt kóbalttár rennur útum frosin augun›

Svei þér Júlía, nú get ég aldrei opnað þau.

‹öskarar á Blástakk eftir hjálp um leið og pocket-exin stingst í annað nýrað›

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 23/3/04 19:04

Gleraugun mega halda sér (á nefinu), en þessar skegglufsur eru enganveginn við hæfi. Áttu ekki gamla fermingarmynd? Hún er vafalítið illskárri en þessi skelfing.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 23/3/04 19:12

Júlía mín kær!

Áttu þú ekki góða mynd af sjálfri þér? Ekki lesbískt leiðinda leikkonu djöfulsins henni Júlíu Róberts.‹getur vart varist hlátri›

úje!

‹sleipur gaur›

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 23/3/04 19:55

Hvernig dirfist þú að ráðast að æru hinnar forkunnarfögru fröken Júlíu apakötturinn þinn!

‹Gengur upp að Leibba og slær hann utan undir með hvítum hanska›

Ég krefst þess að þú biðjist afsökunar, ellegar munum við hittast í dögun og eiga hólmgöngu í tjarnarhólmanum. Sverð eða byssur!? Þú mátt velja.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 23/3/04 19:58

Ég undirritaður biðst innilega afsökunar á hátterni mínu. Fannst mér einungis Júlía ganga of langt í aðdróttunum sínum að útliti mínu og lét einungis í ljós skoðun mína, einmitt á þeirri stundu. Ef ég hef móðgað einhvern að þá biðst ég innilegrar afsökunar. En sem bjúrókrata að þá gerist ég nauðugur til þess að standa á skoðunum mínum.

Leibbi Djazz

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 23/3/04 19:59

Skoðanir eru afstæðar.

‹Smeygir 500 kalli í vasa Leibba›

Allir bjúrókratar ættu að hafa það á hreinu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 23/3/04 20:00

‹Þykist ekki sjá neitt og lokar lokuðum augunum enn fastar!›

Skilið!

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 24/3/04 08:37

Í Fólskumálaráðuneytið er mjög kjánalegt í dag og allir ælandi og spúandi villuvegandi gubbi.

Gubb.

Bubbgubb.

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 24/3/04 13:57

Voðaleg vonska og leiðindi eru þetta í þér Leibbi - þú verður að læra að taka gagnrýni. Vildirðu ekki fá viðbrögð við myndinni? Í krafti embættis míns sagði ég eins og satt er; hún er ekki smekkleg.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 24/3/04 15:35

Einmitt, og ég þakka hreinskilnina. Svo er þér fyrir að þakka Júlía að ég sendi honum Enter okkar aðra mynd og bíð eftir að hún renni ljúflega í gegn.

Afsakaðu ókurteisina í mér, ég var eitthvað illa fyrir kallaður

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 24/3/04 18:01

Sko þig Leibbi minn. Þú ert þá prýðispiltur eftir allt saman.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 24/3/04 18:08

Já, hinsvegar er myndin ekki komin ennþá. Þetta er eitthvað skrýtið alltsaman???

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 25/3/04 01:00

Á meðan við bíðum að þá fann ég allra fyrstu færslu Blástakks inná Baggalút. Fannst hún una sér vel inná þessum þræði. Maður ber óttblandna lotningu fyrir svona gagngerri snilld.

Blástakkur mælti:

Haha! Ég hef forðast gestsgildruna!

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
     1, 2  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: