Fólskumálaráðuneytið
Blástakkur Fólskumálaráðherra
Leibbi Djazz Skjalastjóri Fólskumálaráðuneytið
Fólskumálaráðuneytið er fólskara en þið öll til samans! Starfsmenn bjóða Fólskumálaráðherra sinn velkominn aftur, frá þeIM djöflastað þar sem hann festist í Kóbalthliðrunartímaferli!
HÚRRA!
HÚRRA!
HÚRRA!
HÚRRA!
húrra!
Ég þakka ... til að fagna býð ég upp á sérstakan drykk sem ég hef blandað sjálfur.
Glösin reykja sérkennilega og eitt þeirra lekur niður í poll sem étur sig í gegnum borðið
Heh heh! Þið afsakið en ég notaði kannski fullmikið af soda stream í þetta.
reynir að opna augun
Í almáttugs bænum, farðu að skipta um mynd Leibbi! Það er hörmung að sjá þig. Hvessir augun illilega í átt að Leibba, sem ekkert sér, enda með lokuð augun.
Þú verður nú að viðurkenna að þetta er ekki mjög Bjúrókratísk mynd Leibbi minn. Alvöru bjúrókrati sem tekur sig alvarlega er afar stífur, reglufastur, þunglyndislegur, og fram úr hófi snyrtilegur í útliti.
Í almáttugs bænum, farðu að skipta um mynd Leibbi! Það er hörmung að sjá þig. Hvessir augun illilega í átt að Leibba, sem ekkert sér, enda með lokuð augun.
Tekur upp pocket-exi Ef þú með þína ljótu skanka ferð ekki að láta mig í friði Fröken Róberts, að þá fer ég gera grín að börnunum þínum! Nei, haa.. áttu engin?
eitt kóbalttár rennur útum frosin augun
Svei þér Júlía, nú get ég aldrei opnað þau.
öskarar á Blástakk eftir hjálp um leið og pocket-exin stingst í annað nýrað
Gleraugun mega halda sér (á nefinu), en þessar skegglufsur eru enganveginn við hæfi. Áttu ekki gamla fermingarmynd? Hún er vafalítið illskárri en þessi skelfing.
Júlía mín kær!
Áttu þú ekki góða mynd af sjálfri þér? Ekki lesbískt leiðinda leikkonu djöfulsins henni Júlíu Róberts.getur vart varist hlátri
úje!
sleipur gaur
Hvernig dirfist þú að ráðast að æru hinnar forkunnarfögru fröken Júlíu apakötturinn þinn!
Gengur upp að Leibba og slær hann utan undir með hvítum hanska
Ég krefst þess að þú biðjist afsökunar, ellegar munum við hittast í dögun og eiga hólmgöngu í tjarnarhólmanum. Sverð eða byssur!? Þú mátt velja.
Ég undirritaður biðst innilega afsökunar á hátterni mínu. Fannst mér einungis Júlía ganga of langt í aðdróttunum sínum að útliti mínu og lét einungis í ljós skoðun mína, einmitt á þeirri stundu. Ef ég hef móðgað einhvern að þá biðst ég innilegrar afsökunar. En sem bjúrókrata að þá gerist ég nauðugur til þess að standa á skoðunum mínum.
Leibbi Djazz
Skoðanir eru afstæðar.
Smeygir 500 kalli í vasa Leibba
Allir bjúrókratar ættu að hafa það á hreinu.
Þykist ekki sjá neitt og lokar lokuðum augunum enn fastar!
Skilið!
Í Fólskumálaráðuneytið er mjög kjánalegt í dag og allir ælandi og spúandi villuvegandi gubbi.
Gubb.
Bubbgubb.
Voðaleg vonska og leiðindi eru þetta í þér Leibbi - þú verður að læra að taka gagnrýni. Vildirðu ekki fá viðbrögð við myndinni? Í krafti embættis míns sagði ég eins og satt er; hún er ekki smekkleg.
Einmitt, og ég þakka hreinskilnina. Svo er þér fyrir að þakka Júlía að ég sendi honum Enter okkar aðra mynd og bíð eftir að hún renni ljúflega í gegn.
Afsakaðu ókurteisina í mér, ég var eitthvað illa fyrir kallaður
Sko þig Leibbi minn. Þú ert þá prýðispiltur eftir allt saman.
Já, hinsvegar er myndin ekki komin ennþá. Þetta er eitthvað skrýtið alltsaman???
Á meðan við bíðum að þá fann ég allra fyrstu færslu Blástakks inná Baggalút. Fannst hún una sér vel inná þessum þræði. Maður ber óttblandna lotningu fyrir svona gagngerri snilld.
Haha! Ég hef forðast gestsgildruna!