ÖLÍS lýsir hér með eftir fólskumálaráðherra vorum, sem hefur ekki sést lengi...
Allar upplýsingar vel þegnar...
Síðast sást til hans á sporbaug, þannig að öruggt er að álykta að hann er ekki á þessari jörð.... Er verið að taka upp nýja star wars mynd?
Það er rétt, ný mynd kemur á næsta ári... útskýrir skyndilegt brotthvarf ráðherrans...
Vér erum eigi að síður eigi í rónni. Rannsóknir vorar sýna að hann sást síðast hér:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?p=35853&highlight=#35853
Sú spurning vaknar hvort óvinir ríkisins hafi rænt honum, hvort hann sé í háleynilegum erindagjörðum einhversstaðar eða hvort á þessu dularfulla máli séu aðrar skýringar.
hvað er að gerast?
Einnig virðist gervöll Andspyrnan hafa gufað upp... að honum Herbirni frátöldum. Ekki það að ég sé eitthvað ósáttur við það...bara... hvað er að gerast?
Hvar er Karl Schutz þegar maður þarf loksins á honum að halda?
Aldeilis hefur andspyrnan ekki horfið.
Hún hefur bara verið á stífum fundum undanfarið og ekki gefist tóm til að skrifa innskot.
Já og um hvað fundirnir voru kemur ykkur andskotann ekkert við!
Já og um hvað fundirnir voru kemur ykkur andskotann ekkert við!
Hlustar á upptökur úr hlerunartækjum
hlustar með
aha.... aha.... nú?
Ég minni á að Andspyrnan er virk þó hún sé ekki alltaf uppi á yfirborðinu.
Við höldum reglulega fundi og ráðum ráðum okkar.
Lifi Andspyrnan
Hafið þið nokkuð leitt hugann að því að fólskumálaráðherra ykkar gæti verið í haldi Andspyrnunnar?
Lifi Andspyrnan
Ef málum er þannig háttað er hann eflaust bara þarna til að hlera þessa fundi ykkar.