Á bárunni létt er hún Bára
bylgjurnar varla mun klára
um loðnumið dugga
drengir í skugga
inni og út- þó við -nára
Sókndjarfur Unni var á
undir leit borðstokk en þá
loðnu’an sá
lét því út rá
af færinu skaut svo á ská
Þeir lágu löngum á Guggu
er síður í öldurnar hjuggu.
Einn valt niðr´ á gólf
klukkan korter í tólf.
Fullur í færeyskri duggu.
Eggjaði marga hún Alda
úthafsdrottningin kalda
Í djúp hennar fóru
drengirnir stóru
á dráttarskipinu Valda.
SKRÍTINN ER SKÚTAN HANS VALDA
SKONNERTU MENN ÞAÐ VÍST HALDA
BLÁ MÁLUÐ ER
BEIGLUÐ OG BER.
TIL FISKVEIÐA FER,
Á FÆRINU ER
ÞORSKUR OG ÁRVAKS ALDA,
Hann Geiri, sem réri á Gunnu
golþorska setti í tunnu.
sigldi í land
en setti í strand
í brælu þar vonir hans brunnu.
Gefur á bátinn við Grænland
glaður ég unni það tilstand
dreg ég inn færið
festist þá snærið
drjúgur ég þá dreg mitt band
Þreittur ég sit hér og stari
svefnlaus á grútar kari
lýsið í lé
læt ég í tré-
tunnur með merktu fari.
Það kjaftað var fyrrum um Kjartan.
að neðan við nef hefði kjaft hann.
En svo fór hann í slipp
kom þaðan "kúl" og "hip"
Og tekur svo allt inn að aftan.
SKRÍTINN ER SKÚTAN HANS VALDA
SKONNERTU MENN ÞAÐ VÍST HALDA
BLÁ MÁLUÐ ER
BEIGLUÐ OG BER.
TIL FISKVEIÐA FER,
Á FÆRINU ER
ÞORSKUR OG ÁRVAKS ALDA,
Ég hef aldrei séð 7 hæða limru
Er þetta kanski "Sjamra"?
Mig fullan lét munstra á Seleyna
minnislaus fór ég á Viðeyna
öskrað var ræs
andskoti næs
á net var ég kominn á Engeyna
Sjómannaforystan sefur ei
Sú mun ei hætta rausi.
Spældur og gramur er grey
Guðmundur vinalausi.