Seðlabanki Baggalútíu hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,000001 prósentustig til að sporna gegna hækkandi verðlagi og vegna þenslu í hagkerfinu.
Er þetta talið stafa af kaupum Blástakks á glænýrri Morðverksmiðju sem reyndist stór biti fyrir hagkerfi Baggalútíu.
Reikna má með að nafngengi myntar Baggalútíu muni hækka vegna þessa.
Ahhh, þetta á eftir að koma sér vel fyrir mig.
Hvað ætli Blástakkur sér að fara að gera við þessa morðvél?
Mín ágiskun er að hann setji hana fyrir utan Huga. Síðan þegar fólk fer útaf Huga þá gengur það beint inní dauðann.
Frábær hugmynd að nota þessa morðverksmiðju á jafn nytsaman hátt eins og að losa heimin við óværuna á huga.is
Í stað þess að koma umræddum áhöldum fyrir fyrir utan Huga væri eigi áhrifaríkara að staðsetja þau inni á Huga ?
Já, það væri mun sniðugara þar sem ákveðnir aðilar búa á þessum stað.
Aftur að stýrvöxtunum, það væri oss mjög í hag fjárhagslega ef þeir yrðu hækkaðir um 1% í 1-2 klst. eftir hádegi á morgun, síðan lækkaðir um 2,5% í 3 klst. undir kvöld og færu síðan aftur í sama horf og núna seint annaðkvöld. Förum vér hér með fram á að umræddar breytingar verði gerðar á stýrivöxtum og munum vér þá veita Brenjari góða hlutdeild í gróða vorum.
Ég neita með öllu að taka þátt í þessum skrípaleik!
Leggur 10Baggalúrur inn á lokaðan reikning
Aftur að stýrvöxtunum, það væri oss mjög í hag fjárhagslega ef þeir yrðu hækkaðir um 1% í 1-2 klst. eftir hádegi á morgun, síðan lækkaðir um 2,5% í 3 klst. undir kvöld og færu síðan aftur í sama horf og núna seint annaðkvöld. Förum vér hér með fram á að umræddar breytingar verði gerðar á stýrivöxtum og munum vér þá veita Brenjari góða hlutdeild í gróða vorum.
Hefur Seðlabanki Baggalútíu tekið til greina orð Kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðherra og viðskiptaráðherra Baggalútíu svo að yfirstétt geti hagnast auðveldlega á afleiðuviðskiptum.
Vér þökkum skjót viðbrögð og brátt munu ráðherrar og embættismenn efnast ríkulega.
vó halló, núna þarf ég að kaupa mér stærri fjárhirslu!
Spurning hvort Jóakim sé að selja?
úff, ég þarf stærri en svo
Ég er með ónotaðann kústaskáp heima hjá mér.
Einnig get ég leigt þér ódýrann lás með.
Ég vil gera framvirkan samning og kaupa 20.000 jólasveinahúfur fyrir 2500 Fannsker sem verða afhentar cif þann 1. nóvember (þ.e. jólasveinahúfurnar).
Vér höfum núna hagnast um himinháar upphæðir þökk sé seðlabankastjóra og bjóðum nú ríkisstjórn og embættismönnum smá hlutdeild í gróðanum Dreifir seðlabúntum til viðstaddra
fer út í ÁTVR með peningabúnt
Fer ásamt Leiu prinsessu og Sirrý á Goldfinger með peningabúnt