Heyr, heyr ! Svona efni á heima í hinum eina sanna þræði um hámarksdýpt tilvísana en eigi í þræði þessum er tileinkaður er illskiljanlegum textum og stofnanamáli.
Samt er þetta alveg brakandi flott hjá þér Leibbi!
Þetta er að vísu ekki illskiljanlegt, heldur fremur skondið. Það ófyndna er þó að skv. www.reglugerd.is er þessi reglugerð enn í gildi
Rg. um bindindisfræðslu nr. 103/1956.
7. gr.
Fræðslumálastjórninni skal skylt að sjá svo um, að alltaf sé völ á góðri handbók fyrir kennara í þessum fræðum og sömuleiðis lestrar- eða námsbók fyrir barna- og miðskóla, svo og öðrum kennsluáhöldum og gögnum, sem áfengisvarnaráðunautur telur nauðsynleg til þess að bindindisfræðslan komi að sem beztum notum, eftir því sem að við á í hverjum aldursflokki. Má þar til nefna línurit eftir hagskýrslum, myndir af líffærum, sem eru orðin skemmd af eiturnautnum, og þá einkum áfengisnautn, svo og heilbrigðum líffærum til samanburðar, og síðast en ekki sízt kvikmyndir og skuggamyndir, og ber þá ekki aðeins að leggja áherzlu á hin neikvæðu áhrif eiturnautnanna, heldur einnig hin jákvæðu áhrif bindindis.
Áður en námsbókanefnd ákveður kennslubækur í þeim námsgreinum, sem taldar eru í 6. gr., skal hún leita álits áfengisvarnaráðunautar um það, hvort þær fullnægi þeim kröfum um bindindisfræðslu, sem gerðar eru í reglugerð þessari.