Ég er nú þannig inni í mér að mér finnst hvergi fallegra en á hálendinu. En fjandi þarf nú mikla blindu til að finnast fallegt í Keflavík!
Hvar í ósköpunum kemst maður í partý þar sem 90% eru kvenmenn? Ertu staddur í einhverri útópíu?
Reyndu að komast í vinnustaðapartý hjá einhverjum leikskóla eða grunnskóla, nú eða hjá hjúkkum, flugfreyjum, heimilishjálpum eða snyrtifræðingum. Það er af mörgu að taka.
Jáááá...flugfreyjur. Jááááahh.... Hverfur hægt og rólega inn í ljúfan dagdraum...
Sjáfarsandur eins og hann er kallaður. Við ós Skjálfanafljóts í skjálfanda. Maður hreinlega skelfur yfir fegurð Kynnarfjalla og Útvíkanna. Og ekki skemmir þegar vel viðrar og sést til Flateyjar og stundum til Grímseyjar. En Grímsey sést stundum í hyllingum þarna. Þá er eins og hún sé í lausu lofti. Magnaður staður!
Mér þykir alveg yndislegt að tala um fegurð lands míns Ljómar upp Hér er stuttur listi yfir þá staði landsins sem mér þykja skara fram úr. Þessi listi er leiðbeinandi en alls ekki tæmandi
Skorradalur kannski, ha"?
Skorradalur
Þú ert mikill smekkmaður Kormákur.
Smá viðbót frá mér:
Eyjabakkar
Herðubreið og Herðubreiðarlindir
Hvannalindir
Krepputungur
Kverkfjöll
Lónsöræfi
Snæfell
Sprengisandur
VATNSDALURINN
SKORRADALUR STRÁKAR!
Nú var það?. .
Hvur djöfulinn strákar, hvur só´dómískur djöfulinn. ..
Djöfullinn danskur, Leibbi
VATNSDALURINN
þetta var misfærsla af minni hálfu elsku Mikill Hákon. . . Sjáðu bara 2340. .
Minn vondi.
Ég er búinn að finna út hvernig allt verður fallegt.
Búinn með slatta af rauðvíni og það er meira að segja orðið fallegt í Kópavogi!
Skorri og Flóki Reyktu Lunda í Norðurárdal.
Fróðlegt, en hvað gerðist þá í Lundareikjadal?
Í þessu tilfelli er Lundi nokkurs konar tákn fyrir Lundareykjadal og skýrir það fjarveru hans úr setningunni.
VATNSDALURINN
Mæltu manna heilastur, keisari! Vatnsdalurinn er sannarlega ægifagur.
VATNSDALURINN
Mæltu manna heilastur, keisari! Vatnsdalurinn er sannarlega ægifagur.
Í góðu veðri kannski, en hvenær gerist það?