Stóðlífissambandið hefur gefið út býsna magnað dónalag. Ég er nú ekki þekktur fyrir að kalla allt ömmu mína, en ég roðnaði þegar ég hlustaði á þetta.
Lagið er að finna hér: <a href="http://www.simmi.org/ss.mp3">simmi.org/ss.mp3</a>
Ég þröngvaði sjálfum mér í gegnum circa hálft lagið og verð að segja að mér fannst þetta ansi klént. Rímið var frjálslegt og orð afbökuð til að þau féllu betur að laginu og ég er nokkuð viss um að stuðlasetningu var ábótavant. Innihald lagsins þ.e.a.s. uppáferðir og saurlífi held ég að standi flestum Bagglýtingum helsti nærri til að þetta sé í raun fyndið.
Fannar, nennirðu að skila því til Núma að hann eigi að hætta að hringja í mig á næturnar. Ég vil ekki kaupa Volvo.
Volvó er ekki til sölu - hann hefur verið sendur til Svíþjóðar þar sem sérfræðingar Volvó-verksmiðjunnar vinna nú að því að breyta honum í grafhýsi sem sá gamli hyggst láta koma sér fyrir í þegar hann fer yfir móðuna miklu.
Auk þess notar hann ekki síma.
hlýtur þá að vera Skabbi! Helvítis þambapinn.
Þetta virðist vera einhver óþverri því minn fíni IMac neitar að spila þettaSetur disk með Motorhead í drifið til að verðlauna IMacin
Þetta virðist vera einhver óþverri því minn fíni IMac neitar að spila þettaSetur disk með Motorhead í drifið til að verðlauna IMacin
Guð minn góður, Ferrari! Það notar enginn IMac!
Fer í Byko til að kaupa skrúfjárnasett og rörtöng handa Ferrari svo hann geti reynt að kippa þessu í lag.
iMacinn er góður, jájá. Á stundum vafasamur en góður er hann helvískur.
Vér héldum að hún væri nammibrjóstsykur.
Vér héldum að hún væri nammibrjóstsykur.
Það er nú lágmark að kunna að gera grín að iMac hann lítur ekki út eins og nammibrjóstsykur heldur eins og lampi.
En virkar reyndar betur en nokkur múrsteinslagaður PC skratti.
strýkur létt með hægri hendi yfir gammla góða G3 turninn sinn og lætur sér dreyma um að skipta honum út fyrir nýjan iMac
Nú er imac lampinn já. Ég hélt að átt væri við ferðatölvu eplafyrirtækisins.
Gef mér macplus, með þeirri vél er hægt að gera allt sem þes virði er að gera á tölvu.
Stórmennið getur ekki skilið að nokkur skuli vilja nota svona Barbie tölvur klórar sér í höfðinu en stórmennið hefur fundið aðra vöru frá sama hönnuði sem stórmennið er viss um að konum líst betur á. Ljómar upp http://subvertise.org/details.php?code=261 Stórmennið er nú ánægt að vita til þess að einhver muni nú ljóma upp af gleði með þessa I-eitthvað hönnun.
hlýtur þá að vera Skabbi! Helvítis þambapinn.
Á maður að móðgast yfir svona skotum eður ei?
Ekki ef þú ert stoltur af drykkjunni.