En hinn ?
mikið eru menn iðnir við að þefa uppi þennan þráð - það var svosem nokkuð víst að friðargæsluliðum yrði ekki haldið lengi af þessum þræði
Af þeim sem komnir eru í mark í laumupúkakapphlaupinu þá eru tímarnir eftirfarandi
voff - 3min
Hakuchi - 12 min
Vladimir Fuckov - 12 min
Herbjörn Hafralóns - 4:34
Enter - 6:33
Skabbi Skrumari - 7:14
Haraldur Austmann - 7:15
Nykur - 7:29
Mikill Hákon - 28:19
og nú er bara að bíða þess að aðrir laumupúkar láti sjá sig, reyndar grunar mig að sumir hafi laumupúkast of djúpt á öðrum þráðum og sitji þar fastir. Einnig verður æsispennandi að sjá hver verður fyrsta Baggalútan til að slást í hópinn.
Afhverju tvítekurðu allt? Er bergmál á þessum þræði? þessum þræði?
nei, nei. nei, nei.
Afhverju tvítekurðu allt? Er bergmál á þessum þræði? þessum þræði?
Jú Júlía mín, (og til hamingju með sigurinn í kvennaflokki) það var smá tvítekning þarna hjá mér í um eina mínútu eða svo og kom það til vegna tilraunastarfsemi með breytta tækni.
Í stað gömlu "Ctrl-A, Ctrl-C, Senda" þá ákvað ég svona til hátíðabrigða að prófa "Ctrl-A, Ctrl-C, Ctrl-V, smella af handahófi í textann, Ctrl-V, Senda" tæknina. Sem er alfarið út í hött og þessvagna ákvað ég að lagfæra þetta hrafnaspark hjá mér.
Ég er búinn að taka afstöðu
Júlía, þetta er sólskinsbros.
Það mætti kannski bjóða ykkur upp á kúlupúka í tilefni af þessu pukri.
Þakka þér kærlega fyrir góurinn. Mætti bjóða þér rauðvísnglas?
Ja, raudvnsgls er alltaf vel thegid.
Thid, kaeru laumupukar, gaetud kannski hjalpad mer med sma vanda. Thannig er mal med vextid ad skyndilega er lyklabordid mitt ordid erlent og eg get ekki skrifad islenska stafi. Hvad skal til bragds taka(spurningarmerki - kann ekki ad gera thad a erlenda lyklabordinu).
Litur orvaentingafullur i kringum sig thar sem samskipti a modurmalinu eru nu horfin og vonast eftir likn
Þarftu ekki að breyta því í Control Panel? A.m.k. geri ég það á 98 jálknum mínum. Svo er oft helgimynd í stikunni neðst til hægri hvar fyrstu tveir stafir tungumálsins sjást. Þar á að vera hægt að breyta því líka.
Þetta lagaðist nú jafn skyndilega og þetta bar upp á. En þakka þér fyrir.
Einhver flensa bara. Dugir reyndar oft bara að endurræsa.
Merkilegt hvað endurræsing getur lagað marga kvilla.
Já og gerum vér með innleggi þessu tilraun til að endurræsa (miklu virðulegra orð en endurreisa) þráð þennan.
Laumupúkast undir borði á laumupúkaþræðinum íklæddur Ninjabúning og er því Tvöfaldur laumupúki, glottir lymskuleg og á erfitt með að halda niðri í sér hlátrinum. Reimar skóreimar Vlads saman sem situr alveg grunlaus við borðið og telur sig einan á þræðinum.
snýr sveifinni tvo hringi, þráðurinn pústar aðeins, snýr þrjá snögga hringi og þráðurinn hrekkur í gang Flott er...