Heldur um eyrun og hleypur í hringi
Ekki stærðfræðiformúlur! Allt nema það!
Og svo ætti auðvitað alltaf að draga frá fyrir hvert einasta innlegg fyrsta mánaðar. Þannig að formúlan væri þá:
Aldur*(innlegg - 2*(innlegg síðastu 3 mán)) - 10*félagsrit - (innlegg 1. mánaðar á Gestapó)
Isak Dinesen 08/06/05 - 12:49
Stendur til að prófa einhverja tækni sem leyfir Gestapóum að fylgjast sérstaklega með ákveðinni umræðu, þ.e. velja "uppáhaldsþræði"?
Enter 08/06/05 - 12:50
Já, það stendur einmitt til.
Það eru gleðifréttir.
Einfaldast væri að gefa aðeins baunir fyrir þau innlegg sem innihalda orðin kóbalt, hernaðaraðgerðir, nýlendur, vor göfuga og góða ríkisstjórn, háæruverðug og óskeikul elítan (þetta á ég von á að fái sérlega góðan hljómgrunn), skál (ef a.m.k. tíu orð eru í innlegginu að auki), öðlingur, fól, lesbía og laumupúki.
Fyrir allt annað verði frádráttur og harðar refsingar, jafnvel útskúfun.
Mér líst vel á breytingar... ég dýrka breytingar... Skál... Þá hefur maður frá einhverju að segja í Sögu Sannleikans félagsritum framtíðarinnar...
Skál!
Þetta annars ágæta innlegg ætti ekki að verðskulda baun, skv. tillögum mínum, meðan innlegg Skabba hér að ofan fengi baunir. Kóbalt er nytsamlegt, lof sé hinni óskeikulu elítu (þessu bæti ég við til að ég fengi sjálf baun fyrir ómakið).
Skipta baunirnar virkilega svona miklu máli?
Ég hélt þetta ætti að vera upp á dægradvölina en ekki upp á baunirnar.
Dægradvöl?! Viðvera Gestapó er slík að það er ekki hægt að kalla það dægradvöl, frekar þrælavinnu.
Fól er hann Blástakkur (alltaf með vaðið fyrir neðan mig).
Einfaldast væri að gefa aðeins baunir fyrir þau innlegg sem innihalda orðin kóbalt, hernaðaraðgerðir, nýlendur, vor göfuga og góða ríkisstjórn, háæruverðug og óskeikul elítan (þetta á ég von á að fái sérlega góðan hljómgrunn), skál (ef a.m.k. tíu orð eru í innlegginu að auki), öðlingur, fól, lesbía og laumupúki.
Fyrir allt annað verði frádráttur og harðar refsingar, jafnvel útskúfun.
Þetta er frábær hugmynd Ljómar upp. Bæta mætti við eftirfarandi: Elipton, plútóníum, ákavíti, fagurblár drykkur, ríkisráð, konungur, drottning, forseti, forsetafrú, keisari, keisaraynja, gjöreyðingarstríð og heimsyfirráð Ljómar upp með mikilmennskubrjálæðissvip og dreymir um alheimsyfirráð
Og svo ætti auðvitað alltaf að draga frá fyrir hvert einasta innlegg fyrsta mánaðar. Þannig að formúlan væri þá:
Aldur*(innlegg - 2*(innlegg síðastu 3 mán)) - 10*félagsrit - (innlegg 1. mánaðar á Gestapó)
Afhverju er '-' fyrir framan fjölda innleggja sl. 3 mánuði ? Oss finnst eðlilegra að þar sje plús svo óvirkir gestir færist niður en þeir sem hafa verið virkir nýlega færist upp á við. Þó mætti vera mínus fyrir innleggjafjölda síðustu t.d. 7 daga svo ekki sje hægt að rjúka upp listann í hvelli með skyndilegu innleggjaflóði. En aðalatriðið er að hafa formúluna langa, flókna, leynilega og illskiljanlega og þannig að gestir geti ekki með nokkru móti 'reverse engineerað' hana með því að fylgjast vandlega með gestalistanum.
Hugmyndin er sú að hafa tímann sem það tekur að skríða upp listann nógu andskoti langan, með því móti er hægt að koma í veg fyrir baunasöfnun. Fól eru alveg tilbúin að bíða í eina viku en þrír mánuðir ætti að vera of langt fyrir alla nema þá al-hörðustu.
Svo ætti að gefa aukalega fyrir sunnudagspysti.
+2*(fjöldi innleggja á sunnudögum)
Oss virðist sem eigi hafi ofangreindar hugmyndir fallið í frjóan jarðveg en hvað um það... skál fyrir laumupúkum ! Sýpur á fagurbláum drykk.
Skál, forseti....nei, sérðu lesbíuna þarna með kóbalt-bláa hárið? (Enn með vaðið fyrir neðan mig).
Innlegg þetta er sett hjer inn eingöngu til að halda upp á tveggja mánaða (r)afmæli síðasta innleggs hjer. Skál ! Sýpur á fagurbláum drykk og íhugar að nefna hjer orðið 'lesbía' til að fá Enter til að laumupúkast hjer líka.
Kóbalt, hernaðaraðgerðir, nýlendur, vor göfuga og góða ríkisstjórn, háæruverðug og óskeikul elítan , skál, öðlingur, fól, lesbía og laumupúki.
Bætir síðan við
Elipton, plútóníum, ákavíti, fagurblár drykkur, ríkisráð, konungur, drottning, forseti, forsetafrú, keisari, keisaraynja, gjöreyðingarstríð og heimsyfirráð.

Sælir piltar
Ég myndi halda að þar sem baunatalning hefur verið aflögð sé þessi annars ágæta hugmynd Júlíu fyrir bí. Sem er miður, þetta hefði getað orðið svo skemmtilegt!
Skál annars...