Jæja þá er þessi póstur loksins dottinn inn á síðu tvö og óhætt að fara að laumupúkast hérna - ég ræsi hér með laumupúka kapphlaupið!!
Ég er mættur en ég nenni fjandakornið ekki að hlaupa neitt.
Jæja þá er þessi póstur loksins dottinn inn á síðu tvö
Já, mikið var að það gerðist. Skál !
Og hvert á að hlaupa? SKÁL
Nú hingað auðvitað! Og Voff, þér eruð sigurvegarinn á aðeins 3 mínútum - magnað!
Næstir koma svo að segja JAFNIR, Hakuchi og Vladimir Fuckov á 12 mínútum, Hakuchi var þó sjónarmun á undan og hlýtur annað sætið.
Þetta eru mun betri tímar en ég bjóst við!
Skál fyrir nýjum laumupúkaþræði...Skál
Og skál fyrir þér minn hattprýddi Skabbi.
2 tímar og 54 mínútur, ekki alveg eins sláandi góður tími og hjá Voff en töluvert góður þó
Ég var nú búinn að sjá þennan þráð fyrr í morgun en hugkvæmdist ekki að skrifa neitt þá. Hef svo sem aldrei verið neinn spretthlaupari. Ég reyni samt að fylgjast með því sem gerist á þessum laumupúkaþráðum.
Ég vil endilega minna menn á að að halda þessum þræði sem laumulegustum.
Það er best að gera þannig að um leið og menn hafa skrifað e-ð hér drífa þeir sig og skrifa e-ð á einhvern ómerkilegri þráð á forsíðu 'Almenns spjalls'.
Þannig að minni spámenn hópist ekki hingað þegar þeir sjá rauða peru glóa á umræðutorginu við 'Almennt spjall', en ekkert á forsíðunni.
Skiljú?
Best væri náttúrulega að skrifa eitthvað hér, síðan á gamla laumuþráðinn og svo á forsíðuna. Það væri laumuspil í lagi.

Þetta er hið besta brall!
Sammála, algjörlega sammála, þá er bara að finna eitthvað að skrifa á hinum þráðunum...hehe nuddar saman lófunum af áfergju
Það er hinsvegar æskilegt að sem allra stystur tími líði frá innleggi hér og innleggi á fremstu síðu, með viðkomu í hinum laumupúkaþræðinum í millitíðinni að sjálfsögðu Býr sig undir að leggja eitthvað gáfulegt til málanna þar
Þeir sem skoða allt sem skrifað er, enda að sjálfsögðu á laumupúkaþráðunum, enda eiga þeir það skilið...
kemur lafmóður afsakið hvað ég kem seint, en mér til afsökunar þá var ég í öðru tímabelti, hvað er búið að gerast? Já og Gleðilega páskahelgi félagar!
Hjúkk, hélt ég væri orðinn dauðadrukkinn, fann ekki aftur laumuþráðinn, fattaði síðan að refresha tölvuna enda þessi tölva með þræði frá því á síðasta ári í minni...skál...nú er að skrifa á hina staðina...
fann hann!