Er einhver hér ennþá ? Gægist ringlaður upp úr rykugu neðanjarðarbyrginu og horfir yfir eyðilegginguna
Nykur bjargaðist á giftursamlegan hátt með því að smyrja sig hátt og lágt með frekknóttu kóbalti skömmu áður en ósköpin dundu yfir. Hafðu ekki áhyggjur af eyðileggingunni þetta er ekkert sem þræl.. farandverkamennirnir frá hertek... sambandslýðveldum Baggalútíu ráða ekki við. tekur að raða ákavítisflöskum á langborðið í neðanjarðarbyrginu Meðan nóg er af ákavítinu þá erum við hólpnir! Prílar upp á stól í rifinni skyrtu, rykugur uppfyrir haus ehumm... Kæru félagar! Tími endurreisnarinnar er hafinn! Baggalútía líkt og eldfuglinn Fönix mun rísa er öskunni og verða öflugri sem aldrei fyrr. Lifi sannleikurinn, lifi Baggalútía! Baggalútíu allt! SKÁL félagar!
Ég legg til að settur verði Kerfismálaráðherra í Baggalútíu sem hefði það hlutverk að redda öllu sem fer í kerfi...
Hristir rykið af sér og gleðs yfir að sjá að fleiri lifðu af
Jæææja.....
Gengur út úr kóbaltneðanjarðarbyrginu í hugh heffner slopp með ungfrú Venesúela og ungfrú Frakkland undir örmunum
....þetta voru nú meiri lætin. Hvað hafið þið verið að bauka í hamförunum. Ég gleymdi víst að segja ykkur frá nafnlausu vísbendingunni sem ég fékk í síðustu viku, um hamfarir sem voru á næsta leyti. Reyni að drífa í þessu næst.
Gefur frá sér vellíðunarstunu og smellir kossi á ungfrú Venesúela.
Slapp lifandi.
Tilkynning frá heilgrigðisráðuneitinu:
Minni íbúa á að taka stóran skammt af kóbalti til að vinna móti geislun sem gæti enn verið í umhverfinu.[/quote]
Slapp lifandi.
Tilkynning frá heilgrigðisráðuneitinu:
Minni íbúa á að taka stóran skammt af kóbalti til að vinna móti geislun sem gæti enn verið í umhverfinu.[/code][/quote]
nei, ekki segja mér að ég hafi horfið aftur!?
Gerði ég þetta?
Já, og reyndar hurfu allir í þetta sinn. Eða það höldum vér a.m.k. en erum eigi vissir því vér vorum í þeim hópi er hvarf.
ó, ókei opnar hlera fyrir ofan sig og kíkir út hvað í dauðanum gerðist?
Ég er hér enn ásamt Öryggisveitum Baggalútiu.
Horfir með stolti á sveitirnar í stífpressuðum einkennisbúningum sínum...
vaknar og bröltir á fætur úr rústum trabantsins gamla og góða Hvur djö!?! Hvað gerðist hér? sér ákavítið á borðinuJæja ég pæli í þessu seinna.
Skíðum með forseta vorum. . .
Skriðtæklar sjálfan sig í vinstra nýrað vegna frumleikaleysis og vott af aumkunarverðleika á borð við leikara eins og Dolph Lundgren og Kristi Myst
Vér sjáum hér góð tíðindi, ríkisstjórnin heil á húfi. Nú þarf að endurreisa stórveldi vort og spurning hvort ekki eigi að byrja á að setja herlög í þeim göfuga tilgangi að koma á lögum og reglu á ný.
Herlög eru ofmetin, hefjum frekar stjórnlaust stríð og þeir sem lifa af eru nýja ríkisstjórn Baggalúts.
neinei, ekki ganga of langt Hilmar. Hinsvegar ættum við núþegar að byrja að deila og drottna.
neinei, deila og drottna ("divide et impera" ef ég man rétt) felst í því að veita mismunandi bæjarfélögum mismunandi góð kjör og láta hvort kenna öðrum um það. Þá geta þau ekki sameinast gegn okkur.
Aðferð sem Færeyingar notuðu á nýlendur sínar í Suður-Evrópu í forðum.