Hvers vegna í #%$/?* gátu MR-ingar ekki tapað í kvöld?
#%$/?* = áranum
Aþþí það hefði verið of skemmtilegt. Það er nefnilega allsherjarsamsæri í gangi hjá ríkisstjórninni að drepa íslendinga úr leiðindum. Það útskýrir líka fjárveitingarnar til liðsmanna gettubeturliðs MR. Eru að fá nokkrar millur á mánuði sem og árskort á Óðal
fitlar við stilkinn sinn....
Unnu þessi helvíti aftur!? Þegar ég yfirgaf imbann var MH yfir. Það þýðir ekkert að treysta þessa hippa.
MR-ingar gátu ekki tapað af því að MH-ingar gerðu sér ekki grein fyrir því að í spurningu þar sem er spurt um fleiri en 1 atriði er ákaflega ólíklegt að sama svarið eigi við fleiri ein eitt atriðileggst aftur í hægindastólinn og svífur upp í algleymingi gáfu sinnar
Nema svo vilji til að tveir af þremur af þeim aðilum sem spurt er um, hafi sama þjóðerni. Þó fæðingarstaðurinn sé kannski ekki sá sami...
Annars sýndist mér MR-ingar vera orðnir meiri hippar en MH...það þótti mér vera magnað...
Þátturinn er löngu genginn sér til húðar. Þetta minnir orðið meira á hallærislega samkundu sérvitringa, Logi segir sömu brandarana ár eftir ár, mismælir sig og flissar bjánalega, dómarinn gjammar á eftir hverju svari og stigavörðurinn (sem þetta árið fer ekkert í taugarnar á mér) er alltaf sæt stelpa sem augljóslega leiðist.
MR tókst fyrir margt löngu að ganga að keppninni dauðri með því að klóna dvergvaxna, ámátlega nörda - sem vissulega eru margfróðir og vafalaust vænstu skinn - en hafa ekki sjónvarpsþokka frekar en skítugir sokkar.
Er enginn í Sjónvarpinu sem hefur snefil af hugmyndaflugi og frumlegri hugsun? Hversu lengi á að blóðmjólka þessa hugmynd? Hvenær í óskupunum losnum við við sjálfumglatt glottið á Loga af skjánum? Hættum þessum getgátum - og það strax!
[Þetta er allt að því pistill, ef ekki bara gagnrýni...0 stjörnur]
ég er bara þónokkuð sáttur við þetta, ég veðja alltaf á MR-ingana og er orðinn moldríkur.
Ekki trúi ég nú því. Þegar allir veðja á sama hestinn er vinnnignurinn lítill
Kormákur, Það er nefnilega galdurinn, það veðjar enginn annar á MR. 95% manns voru í öðrum skóla og verða að styðja hann.
Hvernig væri að setja smá veðmál af stað?
Þar sem undanúrslitin eru ekki ráðin enn þá er það ekki hægt strax.
MK - Borgarholtsskóli eiga að keppa á fimtudaginn 11 mars. Oboj obboj Borgarholtsskóli mun svoleiðis taka þessi snobbrassgöt í litlu holunna þeirra.
Hvað segið þið?
MK eða Borgarholtsskóli?
ég segi MK
Hohoho, það verður gaman að sjá þig Hákon heimilislausan eftir gettu betur keppnina á fimmtudaginn. Öskrar af sigurgleði
ég veit að þetta tengist málinu ekkert en ég get ekki fengið mér mynd þó að ég hafi lagt til einn póst Brestur í óstöðvandi grát