Mér fannst það bara svona viðeigandi að sitja ofar í þyngdarbrunninum þar sem smásteinar geta öðlast ótrúlegan atlagskraft á leiðinni niður.
E-e-e-e-erum v-v-v-við í einhverri h-h-hættu? Fer og nær sér í pönnu uppí skáp og setur hana á hausinn
Pönnur munu vera lítil vörn gegn loftsteinum með heljarhröðun á við þá sem veitist með þyngdarkröftum jarðar vorrar.
Elipton er hinn raunverulegi bjargvættur jarðarbúa gagnvart náttúruvá utan úr geimnum.
Ég frétti af mús og múldýri sem voru að rannsaka kindahvarf á jörðinni fyrir nokkrum árum. Þeir komust að því að verur frá öðru sólkerfi voru í svipuðum vandræðum með gróðurhúsahrif og við stöndum frammi fyrir nú. Þessar verur prjónuðu einfaldlega kóbaltbætta ullarpeysu utan um plánetu sína, sem hindraði að geimgeislar nærliggjandi tungls næðu að yfirborði hennar. Ullina fengu þeir úr sauðfé jarðarinnar sem þeir ólu í glerhýsi sem hermdi eftir vistkerfi heimalendanna.
Er þessi reynsla þeirra ekki eitthvað sem hægt er nýta hér á jörðinni?
Þeir hönnuðu reyndar eldflaug á nokkrum vikum og sprengdu tunglið... það er kannski ekki það sem við viljum, sóldýrkendurnir homo sapiens.
??
...svo segja þeir í Andabæ
Ekki treysta þeim þeir eru upp til hópa merðir! Nei annars, það var Marðarbær.
Hilmar er með þetta allt á hreinu, enda Master of the Universe
Jájájá.
Guðmnndíses hvað þetta er gamall þráður
Það segirðu satt. Eldri en andskotinn.
Það var merkilegt. Samkvæmt því er andskotinn innan við tveggja ára gamall. Oss finnst þetta við nánari umhugsun alls ekki gamall þráður.
Það segirðu satt. Eldri en andskotinn.
Þettta er bara ekki rétt!
Andskotinn er fæddur 28/10/03