Hún nær því væntanlega að skríða yfir núllið ef prestar, organistar, kórar o.þ.h. teljast með.
Aftur að efninu, þurfum vér eigi að koma fyrir eftirlíkingu af Hallgrímskirkju þegar hin raunverulega Hallgrímskirkja er komin af stað í tunglferð ?
Hún nær því væntanlega að skríða yfir núllið ef prestar, organistar, kórar o.þ.h. teljast með.
Aftur að efninu, þurfum vér eigi að koma fyrir eftirlíkingu af Hallgrímskirkju þegar hin raunverulega Hallgrímskirkja er komin af stað í tunglferð ?
Ég skal verða eftir og smíða hana. Hef komið til tunglsins og langar ekki þangað aftur. Þar er leiðinlegra en á Selfossi.
Nei, þú hefur ekki farið til tunglsins! Má vera að þú meinir Baggalúníu Haraldur?
Baggalúna!
Og smíði eldflaugarinnar verður náttúrlega samkvæmt nýjustu kóbalt tækni.
Kæri Blástakkur.
Nykur fór í óopinbera heimsókn í Baggalúnfarið Hallgrímskirkju IV í gær. Það var ánægjulegt að sjá hvað framkvæmdirnar voru vel á veg komnar og hversu iðnir þræla.. ehumm verkamennirni voru við vinnu sína. Það sem vakti þó athygli mína er ég ásamt fylgdarliði mínu vorum á efstu hæð Baggalúnfarsins nánar tiltekið í kokkpittinu þá var mér litið útum gluggann í átt að tjörninni. Áttu hernaðarumsvif Fólskumálaráðuneytisis þar ekki að vera fyrir luktum dyrum?
Þess má geta að umsvifin sjást ekki af Fríkirkjuvegi eða Tjarnargötu einungis verður þeirra vart úr kokkpitti Baggalúnfarsins.
Huliðsaflsveggurinn er náttúrulega ekki kúptur og því er stjörnuspillirinn sjáanlegur ofan frá við réttar aðstæður. Til þess að leiðrétta þetta höfum við birt heilmynd sem sýnir "rétta mynd" af umhverfinu í 100 metra hæð. Þar sem Baggalúnufarið, "Hallgrímskirkja", nær ekki upp í þá hæð er mögulegt að sjá undir heilmyndina. Sem betur fer er þetta eina byggingin sem er nógu há til þess að unnt sé að sjá yfir huliðsvegginn og því auðvelt að stjórna aðgangi.
Jahérnahér.
klórar sér í höfðinu Er þetta hægt? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hvaða friðargæsluliði hefur eftirlit með þessum þræði? Er ekki hægt að fjarlægja þessa ógeðslegu mynd hér að ofan. Þvílíkur viðbjóður!
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Nykur er með sinn einkahúmor sem hann ætti eiginlega bara að halda fyrir sig og sína.
„Sína“ erum það kannski við? Ja, hver veit. Kannski einhver heimspekingur. Allaveganna er það ekki mitt að dæma um það.
Labbar í burtu álútur á svip
Nykur! Það er ekki fallega gert að skipta um mynd svona líka dólgslega. Ég svara hérna í mesta sakleysi fyrirspurn frá þér þar sem rétt mynd er til staðar og þá er bara skipt um mynd og settur einhver sá allra mesti viðbjóður sem hægt er að hugsa sér.
Ég neyðist næstum til að segja af mér og bjóða þér embættið.
Það er skítalykt af þessu.
Hahahaha, mér hefur alltaf langað að segja þetta. Var þetta rétti tíminn eða hvað?
Stekkur hæð sína og öskrar af sigurgleði
Jú, ég verð að viðurkenna það að þarna hittirðu naglann á höfuðið kæri Plebbi.
Nykur er alveg sárasaklaus af myndbreytingunni það hefur einhver annar breytt henni! Og legg ég til að ritstjórn rannsaki það hið snarasta! Að þið skulið gruna mig um slíkan viðbjóð. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Óvinir ríkisins eru hér greinilega að verki í viðleitni til að grafa undan öryggi ríkisins og skapa tortryggni og glundroða og skorum vér hér með opinberlega á ÖLÍS og fólskumálaráðherra að bregðast við svona ósvífni af fyllstu hörku.