Helgi Hóseasson.
Þetta er maður sem ég lít upp til. Einn af örfáum.
Já, hann er merkilegur karl hann Helgi. Tilfinngavera og samkvæmur sjálfum sér; eitthvað sem flestir mættu taka sér til eftirbreytni.
Bróðir hans var prestur á Heydölum (Eydölum ((Eimdölum)) þegar kirkjan þar brann og Helgi sem er smiður, var það í viðhaldsvinnu. Vill svo til að hérna getið þið skoðað ávísunina sem hann sendi í bankann austur á Stöðvarfirði og lítið vísukorn sem hann lét fylgja með.
Bjánaskapur af mér að missa af þessari mynd. Þessi maður er hverfisdjásn.
Enda maðurinn Breiðdælingur. Þeir eru snillingar, allir sem einn.
Bjánaskapur af mér að missa af þessari mynd. Þessi maður er hverfisdjásn.
Hún verður endursýnd á RUV um miðjan dag um næstu helgi og svo teipaði maður náttúrulega svona geðveika heimildarmynd.
Stórkostlegt Tinni. Ég býð spenntur.
Helgi er líklega furðufugl hverfisins, þó svo að sköllótti hippinn með síða skeggið sem hleypur með dagblöðin um miðja nótt sé nú líka svolítið merkilegur.
Að vísu er hann orðinn strætóbílstjóri núna. Það er ekki merkilegt.
Bjánaskapur af mér að missa af þessari mynd. Þessi maður er hverfisdjásn.
Hún verður endursýnd á RUV um miðjan dag um næstu helgi og svo teipaði maður náttúrulega svona geðveika heimildarmynd.
Ertu til í að lána mér upptökuna? Ég missti af myndinni vegna anna.
Að vísu er hann orðinn strætóbílstjóri núna. Það er ekki merkilegt.
Mér finnst mjög merkilegt að sköllótti hippinn með síða skeggið sé orðinn strætóbílstjóri. Þýðir það að hann sé hættur að hlaupa með dagblöðin á nóttunni?
Þetta hlýtur líka að eyðileggja fyrir honum morgunsundið í Laugardalslauginni.
Það sem hann hefur verið að berjast fyrir alla ævi hefur hann enn ekki fengið.
Manni klæjar í að gera eitthvað í málinu. Starir þegjandi út í loftið
Já, það er alveg ótrúlegt að það er eins og kerfið hafi allt sameinast gegn honum. Það er nú ekki svo alvarlegt sem hann hefur farið fram á. Allavega ekki miðað við það sem ég hef séð til hans í gegnum tíðina (hljómar eins og ég sé á grafarbakkanum).
Ssssssss plebbin. Ekki segja manni klæjar.
Það má nú minnast á það að hið þrælgóða band Jonee Jonee flutti óð til heiðurs Helga á plötunni Svonatorrek, mjög fín plata það.
Sumir myndu nú kalla hann þverhaus og vitleysing. En maður vorkenndi honum dáldið eftir þessa mynd.
Ætli staða hans hafi eitthvað breyst eftir þessa mynd, ætli það sé búið að breyta textanum í þjóðskrá...
Það má nú minnast á það að hið þrælgóða band Jonee Jonee flutti óð til heiðurs Helga á plötunni Svonatorrek, mjög fín plata það.
Já, einmitt þegar viðlagið kom þá þagnaði í öllum hljóðfærum og liðsmenn sveitarinnar öskruðu einum rómi: "Hvað er að þér þarna, Helgi Hós?? Ertu þarna??"
Vill svo til að hérna getið þið skoðað ávísunina sem hann sendi í bankann austur á Stöðvarfirði og lítið vísukorn sem hann lét fylgja með.
Standið þér á bak við Svartfolasíðuna hr. Austmann?