Magnús varð fyrir miklum vonbrigðum við frumsýningu Landsins snjallasta fyrr í kveld, slælegur þáttur það. Brestur í óstöðvandi grát
Magnús hefur ennfremur orðið Brestur í óstöðvandi grát , sniff, fyrir miklum vonbrigðum með Vísindavefinn sem neitar að svara fyrirspurnum hans. Segið mér, ekki getur verið að Hakuchi sé við stjórnvölin hjá Vísindavefnum Blótar herfilega og rífur hár sitt
Brestur í óstöðvandi grát
Þeir þarna hjá vísindavefnum hafa ekki enn svarað mér. Ég sendi á þá spurningu fyrir meira en hálfu ári.
apar!
Segið mér, ekki getur verið að Hakuchi sé við stjórnvölin hjá Vísindavefnum Blótar herfilega og rífur hár sitt
Brestur í óstöðvandi grát
Hægan nú. Er þetta einhvers konar lúmskt skot á mig með tilvísun í eitthvað sem ég á að hafa gert eða ekki gert þér? Ég er hreinlega ekki nógu gáfnarfarslega fágaður til að skilja svona elítismaskot. Hafir þú eitthvað að til að kvarta undan skaltu skella því framan í mig með allsberum orðum að hætti almúgamanna svo ég fái nú tækifæri til að skilja þetta.
Já, varðandi "Landsins snjallasta" þá þótti mér nú Hálfdán ekki standa sig vel við lestur spurninga þó svo að persónulega útgeislunina vant ekki. Hann gat varla komið orðum eins og "Dostojevskí" eða "Cheetah" skammlaust út úr sér...
Spurningasmiðurinn hafði síðan skrifað þessa miklu snilld: "Hver var síðari formaður Alþýðuflokksins?"....hmmm...
Andrúmsloft þáttarins var síðan einhvernveginn ekki laust við þennan týpíska og plebbalega "Bingó-Vinabæjarfílíng".... Munið þið eftir "Bumbulottói" Ingva Hrafns???
Já ég man sko eftir Bumbulottóinu.
Í bingó-lottó
Í bingó-lottó
Í bingó-lottó
jejejejejeeejeeeee
Ég var svo heppinn að ég missti af þessum þætti.Var að sinna drykkju á hverfisbarnum mínum
Já var það það sem þessi Magnús var að tala um? Ég sá þáttinn. Hann var amk. það ómerkilegur að ég var búinn að gleyma hvað hann hét. Þátturinn var einstaklega lummó og framúrskarandi leiðinlegur. Engin spenna myndaðist um hver myndi vinna, keppnisandinn var enginn meðal keppenda o.s.frv. Og svo hittir helvítis böðullinn ekki einu sinni fórnarlambið! Hvers lags frammistaða er það eiginlega?
Þessi þáttur gæti verið langtum betri með einföldum breytingum. Það sem þarf er líflegri spyrla og síðan þarf að bæta við hættuelementum í leikinn. Búið er að leggja grunninn fyrir slíkt með gapastokkunum. Hægt væri að bæta við öflugu rafsjokki ef viðkomandi svarar rangt. Kvenspyrillinn gæti klæðst svörtum latexfötum og gengið um með svipu og slegið fólk ef það svarar rangt. Böðlinum verður að skipta út. Annan eins aumingja hef ég ekki séð lengi. Hann á að vera feitlaginn og sterklegur, ber að ofan með hettu sem hylur andlit, með stórt magabelti og í leðurbuxum. Nú eða bara Blástakkur. Spennuelement gæti bæst við ef böðullinn kæmi upp með nýjar pyntingaraðferðir í hverri viku handa þeim sem hafa rangt fyrir sér. Síðan mætti breyta formati leiksins á þann hátt að fólk verður að vinna saman eða hópast gegn einhverjum til að fórna í eymdarpytt kvalanna svo þau geti fengið að lifa lengur.
Svo ættu íturvaxnar dansandi klappstýrur dauðans að vera í bakgrunninum hrópandi niðrandi söngva í átt að keppendunum.
Þá væri komið gott sjóv.
Já, það mætti kannski skvetta smá rófustöppu yfir liðið í gapastokknum...hún er að minnsta kosti hollari!
Með SPK var hátindinum náð í íslenskri þáttagerð. ÞAð er bara best að endursýna þá þætti í stað þess að vera eyða orku og dýrmætu kóbalti eitthvað nútíma húmmbúkk.
Mér fannst líka hljómsveitin EXEM vera mjög gott band.
Sega... MEGADRÆV LEIKJATÖLVA!! VEI VEI VEI! Og landin sameinaðist í ást sinni á japönsku önderdoggunum frá sega, slími og körfubolta. SPK var hápunktur næntísins, án efa.
En hver var það sem stýrði þættinum?
Magnús, mér er spurn, hefur þú séð eitthvað, sjónvarpsefni, kvikmyndir eða barnabrennur nýlega sem þér hefur líkað við? klórar sér í höfðinu úúú flatlús
Sega... MEGADRÆV LEIKJATÖLVA! VEI VEI VEI! Og landin sameinaðist í ást sinni á japönsku önderdoggunum frá sega, slími og körfubolta. SPK var hápunktur næntísins, án efa.
En hver var það sem stýrði þættinum?
Var stjórnandinn ekki stúlknabræðirinn Jón Gústafsson, síðar kvikmyndagerðarmaður?
Andrea Róberts var þarna, massaljúft beib.
Materíal í ófáar einfarafantasíur.
Sorrí, minnið er eitthvað að hrekkja mig, en hvað var þetta SPK?? Þetta er væntanlega skammstöfun fyrir eitthvað...