Það er greinielegt að niðurskurðurinn í heilbrigðiskerfinu er farinn að hafa þau áhrif að mjög andlega sjúkir einstaklingar eru farnir að smygla sér sem "Illegal Alien" inn í Baggalútíu. Ég mælist til þess að við splæsum öll í strætómiða handa Klemma....
Hvert á greyið sosem að fara? Mér sýnist vera búið að úthýsa öllum sjúklingum úr sjúkrastofnunum. Þetta var fallega hugsað Tinni og sýnir að þú ert vandaður einstaklingur því ég geri ráð fyrir að þú hafir viljað setja hann í vagninn inn á Klepp.
Svo virðist sem að áætlanir mínar til útflutnings á andlega stirðu fólki séu ekki að ganga sem skyldi. Ég hef verið svikinn af þeim fraktskipsmönnum er ég pantaði frá Marokkó.