Svona munu óvinir ríkisins líka enda ævi sína.
Er ekki hægt að kveikja á loftkælingunni hérna?
Fór á stofnfund neðanjarðarhreyfingar, kem aftur seinna.
Jæja, gjörðið og svo vel ormarnir mínir.
Hér er ég
og get ekki annað.
Færið legsteininn, sé ekki áletrunina héðan.
Ég verð ekki eldri.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá kysi ég nú frekar að sitja á Míkróbar...
þegar öllu er á botninn hvolft er botninn undirstaðan undir öllu
Skrapp í sund, kem eftir hálftíma.
Komdu oní kofann minn er kvölda og skyggja fer.
Það hlaut að koma að þessu fyrr eða síðar...
Ég má ekkert vera að þessu, ég er að fara í afmæli.