Ég skal bara tala við lögfræðinginn hans fyrir þig og redda þessu. Þú getur treyst mér...
Hehe, góður herra!
Glottir eins og Þengill hinn illi í bókunum um ísfólkið eftir Margit Sandemo
Skemmtilegra hefði nú verið að finna kornleifar.
Jah! Hvur veit... Hvur veit segi ég.
Ef menn vilja finna fornleifar á Egilsstöðum, er nærtækast að fara í fatadeild Kaupfélagsins.
Ef menn vilja finna fornleifar á Egilsstöðum, er nærtækast að fara í fatadeild Kaupfélagsins.
VEEEEIIIINAR af hlátri,leggst á gólfið og lemur það með krepptum hnefa
Haraldur getur verið mjög meinhæðinn þegar hann tekur sér slíkt fyrir hendur.
Fyrirgefiði, en þetta átti ekki að vera fyndið. Þetta er sona.
Mikið til í þessu hjá Haraldi. Þegar ég heyrði þetta rifjaðist upp fyrir mér að ég villtist þarna inn einu sinni og bað um heppilegan skófatnað þar sem ég ætlaði á dansleik í Valaskjálf um kvöldið. Konan rétti mér undir eins vaðstígvél nr. 44 og rauða ullarsokka.
Prufaðu að biðja um kynæsandi undirfatnað. Sannir föðurlandsvinir þar um slóðir.
O-hoh-hoh-hoh-ho ó,já blessaðar prjónabrækurnar! Titrar allur og hristist um stund
Gerðu ekki grín að prjónabrókunum í fatadeildinni. Þær seljast eins og heitar lummur og eiga heimakonur ekki undan að prjóna á blessaða Kárahnjúka portúgalana.
Hver er að gera grín? Þarna er einfaldlega gott að koma ef þú ert með ullarbróka- og gúmmískófetish. Svo ekki sé nú minnst á Álafossúlpurnar.
já það hafa verið mikil vandræði meðal austfirskra íslenskufræðinga vegna þessa máls