Lítið um alskegg kannski, en Rauðbjörn hafði samt sem áður mjög myndarlegt skegg.
Kannski þú hafir bara verið svona fullur?
Var Skabbi að staupa lýsi og Ákavíti?
Ákavíti og lýsi er góð blanda...en það verður að innihalda smá slatta af kóbalti líka...til að lýsið byndist betur Ákavítinu...
Það var merkilega lítið um skegg á árshátíðinni, eða hvað fannst ykkur?
Sammála; einkum skeggleysi kvenþjóðarinnar.
Talaðu nú fyrir sjálfa þig, ég er með ágætis skeggrót.
Vér erum eigi frá því að vér séum þessu sammála því ef vér munum rétt voru allir skegglausu gestirnir kvenkyns.
er að hugsa um hvort að hilmar væri að reyna að koma einhverju til máls, en mótmælir ekki staðreynd Vladimírs
Vér erum eigi frá því að vér séum þessu sammála því ef vér munum rétt voru allir skegglausu gestirnir kvenkyns.
Ef mig misminnir ekki, þá voru langflestir gestirnir skegglausir, en langfæstir voru kvenkyns. Hér er eitthvað málum blandið. Starir þegjandi út í loftið
Kannski eru karlkyns Baggalútar taðskegglingar upp til hópa. Strýkur tveggjadagaskeggbroddana
Líklegra er þó að karllútar hafi rakað sig, til að koma sem best fyrir.
Vér erum eigi frá því að vér séum þessu sammála því ef vér munum rétt voru allir skegglausu gestirnir kvenkyns.
En voru allir kvenkyns gestir skegglausir?
Ég hef sjaldan vandað mig eins mikið við raksturinn, því var ég frekar skegglaus þetta kvöld...
Þið ættuð að sjá mig eftir einn sólarhring.
Ég raka mig yfirleitt á föstudögum og læt það svo spretta vel yfir vikuna. Þess vegna var ég bara með smá rót á laugardaginn.
þið voruð heppin með mig, ég rakaði mig rétt áður en ég lagði af stað, annars hefði allt verið löðrandi í skeggi.
Þú varst líka orðin soldið loðinn undir lokin